Drottinn blessi góða veðrið.

Harpa í essinu sínu.

Það brast á með blíðu eins og spáð var og ég er búinn að nýta mér það í botn. Við Harpa hjóluðum 40 km í gær og svo 60 núna í morgun. Skv. plani átti þetta að vera rólegt en það er erfiðara að stilla það af úti þegar það er vindur og svo brekkur. Ég var að spá í hvort ég ætti að hvíla á morgun til að vera frískur fyrir erfiða æfingu á laugardaginn en ég vil frekar láta það ganga fyrir að komast út að hjóla. Til hvers er maður annars að þessu?

Ég er búinn að vera að reyna að stilla wattamælinn af og það er búið að vera eitthvað smá bras með það. Hann var að mæla rétt í gær en datt aðeins út í dag. Ég lagðist eitthvað yfir þetta áðan og held að þetta sé loksins komið.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap