Aftur komið frí.

Yrja og Þórður kíktu í mat í kvöld.

Jæja það er víst aftur komið frí og ég var í stresskasti í vinnunni í dag að reyna að slökkva einhverja elda. Náði reyndar tímabundinni lendingu í einu máli sem var að drepa mig úr stressi, þannig ég var orðinn aðeins rólegri þegar ég fór heim. Mér finnst gaman að hafa nóg að gera í vinnunni en það er óþægilegt þegar maður er kominn í svo mörg verkefni að maður hendist bara á billi en finnst maður ekki ná að klára neitt. 

Ég ætla samt að reyna að sofa rólegur og njóta morgundagsins. Ég ætla að njóta morgundagsins en samt fara í vinnuna. Við Harpa ætluð reyndar að kíkja í samhjól í fyrramálið með hópi af góðu fólki sem endar svo í pylsupartýi. Síðan er stefnan að fara heim í bað og svo reyna að vinna eitthvað. Það er skemmtilegt verkefni sem ég er að fara í á morgun og það er ágætt að vera einn á skrifstofunni, dunda sér og drekka kaffi.

Í kvöld skráði ég mig á byssusalan.is og ætlaði að dæla þar inn einhverjum byssum. Buddan er frekar létt þessa dagana og stutt í útlandaferð. Ég sé eiginlega enga aðra lausn en að losa mig við eitthvað af þessu dóti. Ég nota þetta hvort sem er ekki neitt. Furðulegt hvað það er stórt skref fyrir mann. Ég hef samt selt fullt af byssum um ævina og ég sé ekki eftir neinni af þeim. En ég var byrjaður að reyna að setja eitthvað inn og þá var eitthvað klikk með formatið á myndunum. Ég verð því bara að skoða þetta á morgun í vinnutölvunni og líður hálfpartinn eins og mér hafi verið bjargað af bjöllunni. Frestunaráráttan fékk eitthvað fyrir sinn snúð.

Annars er veðurspáin góð fyrir helgina og endalaus hjólavitleysa framundan. Þórður og Yrja kíktu í mat í kvöld og ég grillaði pylsur og útbjó eftirrétt með bræddum kókosbollum, ís og heitri Toblerone sósu. Það var sæmilegt.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap