|
Alltaf gott að fá þessi heim😊 |
Þær eru nokkuð ólíkar vikurnar hjá mér, eftir því hvort ég er með börnin eða ekki. Stundum finnst mér ég ekki gera nokkurn skapaðan hlut þegar þau eru ekki hjá mér. Þá rétt held ég heimilinu á floti, tek æfingar, elda og hvíli mig. Dagurinn í dag var nokkuð týpískur "barnadagur" hjá mér.
06:50: Vaknaði fékk mér búst og Special K. Kom börnunum á fætur, lét þau éta og klæða sig. Fékk mér einn kaffibolla á dollunni, burstaði tennur og kíkti aðeins á fréttir.
07:50: Börnin látin búa sig fyrir útivistardag og ég hjólaði með þeim út í skóla og hjálpaði Dagbjörtu með skíðadótið. Hjólaði svo heim þar sem ég gleymdi flíspeysunni hennar. Hjólaði í vinnuna.
08:03: Mættur í vinnu, kaffi og fyrsti fundur kl. 08:30.
10:00: Hummus, gróft kex, búst og annar fundur.
11:00: Risafundur sem ég var búinn að drullukvíða. Hann fór vel.
12:00: Hádegismatur, lasagna og spínat. Fundir og stress eftir hádegi.
15:30: Hjólaði upp í Lundarskóla, náði í Dagbjörtu Lóu og við fórum heim.
16:30: 1,5 klst erfið VO2 max æfing og svo í bað.
18:00: Halldóra kíkti í heimsókn og skrapp með börnin í Hagkaup á meðan ég eldaði.
19:00: Kvöldmatur, grænmetisbuff, hrísgrjón og heit sósa.
19:30: Ég byrjaði að ganga frá en Halldóra fór að spila við börnin, jarðaber og súkkulaði í boði.
20:30: Börnin fóru að læra og ég hélt áfram að ganga frá og taka börnin til fyrir morgundaginn.
21:00: Lásum í Fíusól
21:25: Dagbjört fer að sofa en Brynleifur að lesa. Ég sest loksins niður í fyrsta skipti síðan í vinnunni.
Þetta var s.s. góður dagur og mér finnst ógeðslega gaman að vera í þessu hlutverki. En ég verð að viðurkenna að ég er stundum með samviskubit yfir öllum tímanum sem ég er að eyða á hjólinu. Ég er að skila rétt tæpum 12 tímum í þessari viku og kannski eins gott að maður slappi af vikurnar sem maður er ekki með börnin til að maður brenni ekki út.
Annars var ég eitthvað hálf kvefaður og tussulegur í vinnunni og var ekki viss um hvort ég ætti að taka svona erfiða æfingu. En eftir að hafa hjólað heim og losnað úr þurra skrifstofuloftinu leið mér betur. Og æfingin gekk vel ég var bara mjög ánægður. Á morgun er 2 tíma endurance-æfing, á föstudaginn 1,5 klst over/under æfing, þá 2 klst endurance og svo 4 klst endurance á sunnudaginn. Ég hlakka til að slappa af í næstu viku.
Ummæli