Covid - Dagur III

Hádegismaturinn í dag.

Morguninn í dag var sennilega sá versti síðan ég veiktist af þessu helvíti. Ég hef reyndar oft verið slappari en ég var eiginlega ekki fær um að vinna neitt af viti. Mér var illt í maganum, ringlaður og með nettan hausverk. Eftir það hef ég sveiflast milli þess að líða vel og yfir í að liggja bara fyrir. Ég hef aðeins þurft að vinna en þegar ég er ekki að því hef ég verið að hlusta á podcast og leggja kapal. 

Ég er búinn að éta frekar mikið eins og hina dagana og nú ætla ég að fara að reyna að halda aðeins aftur af mér. Ég er reyndar aðalega búinn að éta eitthvað hollt- en fékk mér eitt hraun með miðdegiskaffinu. Annars get ég bara ekki beðið eftir því að komast á hjólið aftur, mér finnst ömurlegt að geta ekki tekið æfingar. 

Um hádegi á morgun fer ég svo í vinnuna og sé um hreindýraútdrátt ársins 2022 í beinni útsendingu. Við nafnarnir erum búnir að vera að stilla saman strengi okkar og þetta ætti að ganga fínt. Ég er svona hæfilega stressaður en er viss um að þetta muni ganga vel. Sjáum hvernig heilsan verður.


Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap