Covid - Dagur II

Covid kemst ekki í hálfkvist við góða ælupest, en sjáum hvernig eftirköstin verða.

Jæja þá er dagur 2 í þessari veirupest að klárast. Ég var þokkalegur í gærkvöldi en vaknaði svo frekar slappur milli 3 og 4 í nótt og mokaði í mig verkjalyfjum og tók stíflueyði í nefið. Eftir það svaf ég ágætlega fram á morgun. Ég hef svo verið við ágætis heilsu í dag fyrir það mesta, sem er ágætt þar sem ég þurfti að vinna frekar mikið. En þetta gengur upp og niður og núna ligg ég í sófanum frekar druslulegur. 

Börnin eru ennþá frísk og við bara verðum að bíða og sjá hvort þau hreppi hnossið líka. Brynleifur gisti hjá Árna vini sínum í nótt en Dagbjört greyið hefur að mestu mátt þola að hanga heima með mér og láta sér leiðast.

Ég var að fara yfir dagatalið í vinnunni og það lítur út fyrir að það verði nóg að gera hjá mér á morgun líka og ég vona því að ég fari að skána. Að lokum vil ég nefna að ég er búinn að vera með alveg óhemju mikla matarlyst, sama hvað það á nú að þýða? Ég þarf hreinlega að halda aftur af mér að klára ekki allt matarkyns sem á vegi mínum verður. 

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap