Vikuuppgjör VIII - vika 2 í Base 2

Vikuuppgjör úr Strava.

Jæja þá er vika 6 af 22 fram að íslandsmóti búin- og hún gekk bara fínt þrátt fyrir að ég þyrfti að vera með tilfæringar þar sem ég fór í vinnuferð til Reykjavíkur. Það sem reddaði mér var að ég var á Grand Hótel og þar er ágætis aðstaða til að lyfta. Ég gat því haldið lyftingaæfingunni inni á föstudegi og hjólaði svo létt þegar ég kom í bæinn á laugardaginn (fluginu var frestað um heilan sólahring). Í gær (sunnudag) tók ég svo löngu æfingu vikunnar og hjólaði 108 km. og var bara mjög sprækur.

En núna er komin upp töluverð óvissa með þessa viku. Ég á að leggja af stað til Egilsstaða á föstudaginn og þarf að vera þar við vinnu fram á laugardag. Lyftingaæfing föstudagsins er því dottin út. Síðan var kærastan mín að greinast með covid og ég bíð milli vonar og ótta með hvað verður. Ég er búinn að fara í tvö hraðpróf en greindist neikvæður í báðum. En við vorum saman alla helgina og hún er orðin sárlasin þannig það er með ólíkindum ef ég hef sloppið. 

Í fyrradag deildi ég grein á FB þar sem eru teknar saman niðurstöður úr rannsóknum um áhrif þess að æfa þegar maður er með covid og niðurstöðurnar benda til þess að maður ætti helst að hafa hægt um sig í allavega 2 vikur, burtséð frá því hvort maður er með einkenni eða ekki. Ég get ekki hugsað þá hugsun til enda að hreyfa ekki á mér rassgatið í 2 vikur. Núna er ég í sjálfskipaðri einangrun allavega þangað til á morgun og fer allavega ekki í ræktina í dag. En ég get alveg tekið styrktaræfingu hérna heima og hjólað á eftir en er á báðum áttum. En þetta eru nú bara velmegunarvandamál.

Annars endaði vikan hjá mér svona:

Total duration: 10:20
Total Training Stress Score: 470
Bike duration: 08:39
Strength duration: 1:41
Distance: 278 km
Elevation gain: 1634 m

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap