Vikuuppgjör VII - vika 1 í Base 2 - aftur í bílstjórasætið
Vikuuppgjör úr Strava. |
Eftir niðursveiflu og svekkelsi í miðri æfingavikunni, þá kom ég bara nokkuð sterkur til baka og horfi bjartsýnn fram á veginn. Ég var að skíta á mig á fimmtudaginn og tók þá ákvörðun að klára ekki æfingu dagsins. Ég fór í ræktina daginn eftir og svo færði ég löngu æfinguna aftur um einn dag til að fá frídag. Í dag fór ég 100 km á endurance pace og átti nóg inni þegar ég var að klára. Það tók mig tæpa 3 tíma að hjóla þetta.
Ég á reyndar eftir 45 mínútur til að klára settan tímafjölda fyrir vikuna en fór fram úr Total Training Stress Score sem var áætlað. Ég er því í góðum málum. Annars endaði vikan hjá mér svona:
Total duration: 07:36
Total Training Stress Score: 349
Bike duration: 05:52
Strength duration: 1:44
Distance: 192 km
Elevation gain: 998 m
Næsta vika er aðeins brattari og ég er að fara að taka 10 klst. Ég reyndar þarf að fara til Reykjavíkur á fimmtudaginn og þarf þessvegna að fara í smá tilfæringar. Samantekið; ég held ég sé á réttri leið og ætla ekki að hræra í neinu alveg strax.
Ummæli