Vikuuppgjör V - vika 4 í Base

Vikuuppgjör af Strava

Þá er  þessari æfingaviku lokið og ég er ekkert eðlilega ánægður með mig. En eftir 3 klst. æfingu í morgun er ég líka mjög feginn að það sé komin hvíldarvika og geta hvílt hjólið fram á miðvikudag. Ég fer í ræktina á morgun en svo kemur einn frídagur sem er vel verðskuldaður. Ég tek svo FTP test á föstudaginn áður en ég fer í ræktina og þá kemur í ljós hvort ég er ekki á réttri leið. En vikan endaði svona:

Total duration: 10:55
Total Training Stress Score: 467
Bike duration: 09:10
Strength duration: 1:45
Distance: 245 km
Elevation gain: 3347 m

Eins og ég var búinn að koma inn á hér áður þá fór ég að bæta á mig smá vikt eftir að ég byrjaði í ræktinni en með öllu þessu hjólaríi er það að jafnast út. Ég er að bæta á mig vöðvamassa og missa fitu. Miðað við allt æfingaálagið þýðir þetta að ég er að éta nóg og sæmilega rétt.

En annars er bara allt gott að frétta. Við börnin áttum dásamlega helgi í rólegheitum heima. Dagbjört var á fullu að leika við vinkonur og Brynleifur gisti hjá vini. Guðrún ákvað að sækja þau í kvöld þar sem veðurspáin fyrir morgundaginn er ekki kræsileg. Ég ákvað því líka að rölta í vinnuna áðan og ná í tölvuna. Það er sennilega best að vera ekkert að þvælast í fyrramálið.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap