Veturdrottning

Á leið úr vinnu- ég var eins og hirðfífl með lambhúshettu og flugeldagleraugur og ákvað því frekar að taka bara mynd af Puggnum.

Það er búið að snjóa nokkuð hressilega hérna norðan heiða og ruðningstækin hafa vart við að hreinsa stíga. Í morgun ætlaði ég að vera sniðugur og sleppa við að bera hjólið yfir ruðninginn hérna við blokkina en þetta leiddi mig í hálfgerðar ógöngur og ég skiptist á að þræða hálfmokaða stíga og vera í umferðinni. En eins og alltaf finnst mér þetta gaman og hressandi. Ég gæti heldur ekki verið sáttari með að hafa keypt þetta hjól, en ég færi lítið um á venjulegu fjallahjóli eins og mokstri er háttað.

Það var brjálað að gera hjá mér í vinnunni í dag og ég stóð varla upp frá skrifborðinu mínu. Ég endaði með að sitja tveimur klukkutímum lengur en venjulega og ætlaði varla að hafa mig heim. Þrátt fyrir góðan gang í vinnunni var ég eitthvað hálf tómur og eirðarlaus þegar ég kom heim í tómann kofann. Til að vinna bug á því fór ég að fara í gegnum eldhússkápana, þrífa og ganga frá þvotti. Áður en ég vissi af var kominn kvöldmatur og nú ligg ég upp í sófa og slappa af. Það er frí frá æfingum í dag og ég ætla að reyna að njóta þess og horfa á eitthvað skemmtilegt.

Svona út í bláinn, matardagbókin í dag:

Morgunmatur: Spínat-smoothie með haframjólk, ávöxtum, hamp + chia-frækjum og próteini. Ristuð brauðsneið með gúrku og osti.
Millimál eitt: Gróft hrökkbrauð m/smjöri og Finn crisp þríhyrningar.
Hádegismatur: Saltkjöt og baunir.
Millimál tvö: Hrökkbrauð m/smjöri, banani og próteindrykkur.
Kvöldmatur: 2 spæld egg með smá osti og hafragrautur með kókósflögum, gráfíkjum, rúsínum, möndlusmjöri og blönduðum fræjum.

Þetta ætti að vera fínn grunnur fyrir hressandi tempó æfingu á morgun

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap