Vani og rusl
"Habits are the way to improve yourself. You don't have a lack of "motivation". You have lack of habits, and a lack of understanding of how to intelligently create habits."
"Stundum vildi ég vera gaurinn sem á bara 2 mismunandi langerma merino boli (sem ég væri alltaf í til skiptis), tvennar gallabuxur, eina skyrtu og 2 jakka- einn fínan og annan ekki. Eina lopapeysu. Að ég væri ekki með 8 tegundir af mismunandi fræjum, hnetum og þurrkum ávöxtum í eldhússkápnum sem eru útrunnin og ekki með fullt af drasli í frosti sem ég veit ekkert hvað er gamalt. Stundum vildi ég að allt föndrið sem börnin hafa komið með úr skólanum væri horfið og ljótu málverkin sem ég fékk í brúðargjöf væru gufuð upp. Að ég ætti ekki gulan bónuspoka í fataskápnum fullan af bindum, slaufum og axlaböndum sem ég aldrei nota. Að ég ætti ekki 8 pör af skóm sem sér ekki á en ég er búinn að fá leið á. Að jakkafötin hans afa væru horfin og líka gönguskórnir sem pabbi gaf mér og eru örlítið of stórir. Að skúffurnar með snúrunum, saumnálunum, batteríunum, gömlu farsímunum og útlenda klinkinu væru orðnar tómar."
En afhverju var ég að skrifa þetta? Ég hef ekki hugmynd? En þetta var bara einhver svoleiðis dagur. Í kjölfarið hreinsaði ég vel úr fataskápunum og fór með fullt af drasli á grendarstöð. Ég á eldhússkápana eftir en stefni að fara í þá fljótlega.
Stundum kemur bara eitthvað tímabil hjá mér þar sem mér finnst ég vera að drukkna í einhverju helvítis drasli sem ég hef ekkert við að gera og hata að vera með tilfinningalegar tengingar við hluti. Spurning um að koma upp einhverjum góðum vana í þessu samhengi og fara að lifa einfaldara lífi.
Ummæli