Rulli

Æfingavikan sem er í gangi.

 Þessi vika hefur byrjað vel á flestum sviðum og ósköp gott að vera búinn að fá börnin til sín aftur. Þessi dagur reyndar fór fyrir frekar lítið. Eftir skóla fór Dagbjört til Heiðrósar og ég notaði tækifærið og tók 2 tíma æfingu. Brynleifur var í fótbolta á meðan. Síðan  bara rétt náði maður að halda heimilinu á floti, drekka einn tebolla og horfa á fréttir. Síðan las ég fyrir börnin og er kominn upp í rúm fyrir kl. 22. Maður verður að reyna að hugsa vel um sig. Við átum pasta, egg, salat, brauð og AB mjólk í eftirrétt.

Æfingin áðan var endurance æfing og ég verð reyndar að viðurkenna að ég hef verið ferskari. Ég var að taka réttstöðulyftu í gær og kannski sat það í mér. Annars er ég að ná svakalegum bætingum í ræktinni og vona að það gefi til kynna að ég sé ekki að keyra mig út. Á morgun ætla ég að taka frí en svo tek ég ramp testið sem ég talaði um og smá endurance/recovery eftir það. Kannski færi ég löngu æfinguna fram á sunnudag en ég er búinn að ákveða að ég ætla að hjóla 100 km. Það verður þá fyrsta skipti sem ég nenni því innandyra.

Annars hef ég ekki verið neitt rosalega skynsamur í mataræðinu upp á síðkastið en hef ekki of miklar áhyggur af því. Aðalatriðið fyrir mig núna er að borða nóg og helst koma nægilega mikið af hollu ofaní sig þó það slæðist stundum eitthvað ógáfulegt með. Þegar kemur fram í mars, þá byrja ég að hugsa ennþá betur um mataræðið og leggja áherslu á holl gróf kolvetni, grænmeti, kjöt og fisk. Ég er nokkuð stöðugur í þyngd og held ég sé 66 kg núna en var búinn að vera 65 nokkuð lengi. Reikna með að vera 63 þegar ég tek þátt í fyrsta mótinu.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap