Öllu aflétt - "erum að endurheimta eðlilegt líf"
Ef stjórnmálamenn í dag vilja láta taka sig alvarlega, þá ættu þeir að reyna að líta aðeins meira út eins og Leonid Brezhnev. |
Í gær voru iðnaðarmenn í vinnunni að laga loftið og allt fullt af ryki og drullu. Í dag var fólk með einkenni í öndunarfærum og engin veit hvort það er út af ryki eða einhverju öðru. Ein sem var á skrifstofunni í gær er svo komin með covid og allt í biðstöðu. Svo var von á fleira fólki að sunnan en það hætti við þar sem allt var orðið vaðandi í smitum á þeim stöðum sem þau áttu að heimsækja. Ég er búinn að vera kaf-stíflaður í dag og ætla að kaupa heimapróf á eftir til öryggis. Maður fer að ímynda sér allt það versta.
Og svona til að bæta ofaná þetta; þó það sleppi flestir orðið létt frá þessu covid núna, þá þekkir maður persónulega nokkra sem fengu væga pest en glíma við ömurlegar afleiðingar og sjá ekki út úr þeim vandræðum.
Annars á ég að fara suður á morgun í vinnuferð og á að fljúga norður aftur seinnipartinn á föstudag. Veðurspáin lítur hinsvegar alls ekki vel út og ég verð sennilega að dúsa í sollinum fram á laugardag.
Það er frídagur hjá mér í æfingum í dag og það er ágætt eftir 200 km og eina lyftingaæfingu á 3 dögum. Ég er s.s. ekkert líkamlega þreyttur en er með þennan pirring í öndunarfærum sem er vonandi bara eitthvað tengt ryki og drullu. Jæja best að hætta þessu væli og fara út að kaupa próf.
Ummæli