Föstudagspóstur

 

Þessi vika hefur um margt verið góð og það var rífandi gangur hjá mér í vinnunni. Svo kom reyndar upp eitt leiðindamál sem dró mig aðeins niður en ég ætla að reyna að láta það ekki halda fyrir mér vöku um helgina. Maður er alltaf að þroskast og komast nær því að taka það ekki inn á sig þegar fólk er ekki sátt við mann. Ég tala nú ekki um ef fólkið er ekki í andlegu jafnvægi.

En svo er ég líka búinn að vera að pirra mig á hvernig mér gengur með æfingarnar. Eftir rífandi gang (að ég hélt) hafa testin verið að benda til þess að það sé komið bakslag í þetta hjá mér. Ég tók aftur FTP test núna í gær og ég var lélegri en í nóvember. Eftir testið ætlaði ég svo að hjóla í 1,5 tíma en hætti því svo bara þar sem mér leið ekki nægilega vel.

Í gærkvöldi var ég frekar slappur og átti erfitt með að halda mér vakandi yfir imbanum. Í morgun var ég svo með kvefeinkenni og það endaði með því að ég bókaði covid-próf í morgun. Niðurstaðan var neikvæð og ég verð því að finna mér aðra afsökun. Nú verð ég bara að vera þokkalega skynsamur og það fyrsta sem mér dettur í hug er að skrúfa tempóið örlítið niður í æfingunum þó ég haldi kannski inni einni erfiðri æfingu í viku.

Þrátt fyrir þetta bakslag í gær þá skellti ég mér í ræktina eftir vinnu- enda farið að líða betur. Ég átti ágætis æfingu þó ég hafi aðein haldið aftur af mér. Ég ætla að hvíla á morgun og svo á ég langa æfingu á sunnudaginn. Ég ætla aðeins að sjá til hvernig hún gengur. Ef ég verð úti á túni, þá sennilega tek ég mér bara nokkra daga frí og sé hvernig ég verð þegar ég kem til baka. Það eru sennilega orðnir 5 mánuðir síðan ég tók mér frí í meira en 3 daga og kannski er ég að verða of gamall til að þola þetta.

En afhverju er ég með mynd af þessum sykri hérna uppi? Jú vegna þess að ég var eitthvað að velta því fyrir mér um daginn hvort það væri heimskulegt af mér að leyfa börnunum að fá kanilsykur á grautinn á morgnana eða púðursykur á súrmjólkina. Ég fann svo þessa mynd og ætlaði að skrifa einhverja langa færslu um öfgar í tengslum við mataræði. Ég hinsvegar nennti því ekki en ætla að hamra á því að það er einhver gullin meðalvegur. Er það virkilega slæmt fyrir börn sem fá nánast aldrei gos að fá eina teskeið af sykri við og við. Ég held ekki.


Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap