Vikuuppgjör

Æfingar síðustu 4 vikna

Þá er ég byrjaður að rúlla inn í æfingaprógram þar sem ég tek tvær lyftingaæfingar í viku með hjólinu (mánudaga og föstudaga). Ég þarf nú eitthvað að fínstilla þetta á meðan ég er að venjast lyftingunum aftur því ég er svolítið grillaður í löppunum í dag og þarf að fara í ræktina strax á morgun. Ég er að spá í að hvíla á þriðjudaginn, hjóla 2 klst rólegt á miðvikudag og kannski bara hvíla aftur á fimmtudaginn, aðeins eftir því hvernig mér líður. En vikan endaði:

Hjól: 152 km
Lyftingar: 01:38 klst 

Ég var búinn að vera í smá rugli í mataræðinu eftir jólin en náði að laga það svolítið til. Hef verið að éta meira af kotasælu, ávöxtum, brokkolí, grófmeti og hummus. Ég finn strax að það er að skila árangri. Ég er að fara eitthvað aðeins upp í vikt en það er eðlilegt með lyftingunum og allt í lagi að bæta á sig 2-3 kg. í þessum uppbyggingarfasa. Svona mun ég halda áfram næstu 3 mánuði en þá fer ég að fasa út lyftingarnar og bæta í hjólaæfingarnar.

Ég er ennþá að vesenast með endanlegt æfingaprógram. Ég fékk mér þjálfaraaðgang að Trainingpeaks og ætlaði að setja upp plan fyrir sjálfan mig en það virðist aðeins snúnara en það leit út í fyrstu. Kannski reyni ég bara að fara í gegnum þessa 3 lyftingamánuði á skynseminni og svo ráða þjálfara. Eftir því meira sem ég spái í þetta, þeim mun ruglaðari verð ég.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap