Lífið

Gott að vera vel græjaður í vetrarfærðinni.

ATH! Ég fann þessa færslu sem "draft" og ég hafði greinilega aldrei póstað henni. Læt hana fara hérna inn þó seint sé. 

Fyrstu þrír dagarnir í þessari viku hafa verið býsna annasamir hjá mér, sérstaklega í vinnunni. Teymisstjórhlutverkið færir ýmis mál á borð til manns og maður situr meira og minna allan daginn við að ganga frá einhverjum erindum og málum. Hripar niður á miða og reynir að gleyma engu. Tíminn er fljótur að líða og manni finnst maður hafa gert gagn þegar maður fer heim.

Þrátt fyrir það er ég eitthvað tættur í gær í eirðarlaus eftir að ég kom heim. Sennilega er það bara einhver tómleiki eftir að börnin fóru til mömmu sinnar í fyrradag, en þau voru búin að vera hjá mér í næstum 2 vikur. En það var s.s. í ýmis horn að líta hérna heima og svo tók ég bara letikast eftir kvöldmatinn.

Ég tók mjög erfiða lyftingaræfingu í fyrradag og hvíldi því í gær. Ég hafði sennilega bara gott af því. Tók svo eina 1,5 klst endurance æfingu áðan og fann að það var ennþá smá þreyta í löppunum. Ég hugsa að ég taki eina auðvelda á morgun líka og svo eru lyftingar á föstudaginn. Ég stefni að einni langri æfingu á laugardaginn og svo ætla ég að hvíla á sunnudag.

Eftir endalaust hringl fram og aftur með æfingaáætlanir, þar sem ég var eiginlega kominn að þeirri niðurstöðu að best væri að fara eftir svo kölluðu Sweet Spot Training, þá hef ég skipt um skoðun eina ferðina en og ætla að vera skynsamur og halda áfram með það sem ég lagði upp með í byrjun, þ.e. Polarized nálgun. Ég ætla að skrifa aðeins betur um þetta hérna fljótlega og útskýra muninn. En fyrir þá sem hafa áhuga er hér fjandi gott viðtal við Stephen Seiler sem er guðfaðir PT, eða 80/20 eins og það er stundum kallað.

Annars var ég búinn að gera mér aðgang á trainingpeaks til að búa til æfingaplan fyrir mig sjálfur. Þar lenti ég í einhverjum vandræðum en þegar ég var að klára hjólaæfinguna var hringt í mig frá USA og mér leiðbeint hvernig ég held áfram með þetta. Þetta kallar maður sko customer service. Ég ætla því að leggjast aðeins betur yfir þetta og skoða möguleikana á því að nota þetta forrit til að vera minn eigin þjálfari.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap