Allt að gerast
Úr svefnherberginu. |
Það er óhætt að segja að kófið hafi verið að hafa áhrif daglegt líf upp á síðkastið. En ég nenni ekki að tala um kófið- það bætir ekkert að velta sér upp úr þessu. Maður gerir bara sitt besta og tekur einn dag í einu.
Ég er tæplefa hálfnaður inn í æfingavikuna og fékk hvíld í gær sem var ágætt eftir erfiða lyftingaæfingu á mánudaginn. Í dag er ég að fara að taka eina endurance æfingu, sem verður reyndar ekkert allt of auðveld. Á morgun er ræktin og svo löng æfing sem ég færi frá laugardegi fram á sunnudag.
Vikan sem er í gangi og næsta. |
Það er búið að ver mjög forvitnlegt að vinna með Trainingpeaks og mér finnst þetta mjög skemmtilegt. Það er í rauninni tvennt ólíkt að vinna eftir óljósri áætlun eða fara að vinna eftir stífara plani með fleiri klukkustundum. Ég er strax farinn að þurfa að púsla niður á vikuna og skipuleggja allt í drasl, t.d. ef ég ætla úr bænum. Ég vaknaði t.d. kl. 05:30 á þriðjudaginn og tók æfingu. Ég var ekkert rosalega ferskur en það var óhemjugott að vera búinn með hana þegar ég kom heim úr vinnunni, þreyttur og sæll.
Er að fara í Mývó með börnin á morgun en kem aftur á laugardag. Verð sennilega alla næstu helgi líka í Mývatnssveit til að sjá um búið fyrir Egil og mömmu. Þá er bara tvennt í boði, að pakka 09:30 klst æfingum á 5 daga áður en ég fer eða taka hjólið og trainerinn með.
Ummæli