Peningaeyðsla í aðdraganda jóla

Specialized Power Comb hnakkur.
 

Eitt af því besta við hjólreiðar er hvað þær fara vel í líkamann, ef svo má að orði komast. Ef ég ber þetta saman við crossfit og hlaup, sem ég þekki ágætlega, þá er þetta tvennt ólíkt. Ef frá er talin hættan á því að detta þegar maður er að hjóla úti (sem getur reyndar orðið mjög alvarlegt), þá eru meiðsli í liðum, tognanir og annað slíkt mjög fátítt. Og ef maður er ekki að keyra allar æfingar í botni, getur maður hjólað andskoti mikið án þess að finna fyrir því. Það er bara gamla góða reglan að hlusta á líkamann og hvíla sig þegar maður er þreyttur.

Þegar maður byrjar að hjóla á götuhjóli í fyrstu skiptin er reyndar ekkert óeðlilegt að finna fyrir smá dofa í höndum og tám, pirring í öxlum og þreytu í mjóbaki. En með tímanum hverfur þetta nú yfirleitt og maður venst því að sitja á hjólinu. En það er kannski eitt sem getur alltaf gert vart við sig og það eru óþægindi í rassinum og typpinu eða píkunni (eftir því sem við á)- svo við tölum nú bara hreina íslensku hérna.

Ég veit ekki hvort ég sé að hjóla svona mikið núna eða hvað það er en ég er allavega búinn að vera að finna meira til í rassinum með tilheyrandi doða á viðkvæmum stöðum. Hnakkurinn sem ég er með núna er af gamla skólanum, þ.e. langur og frekar mjór og þegar ég sit á honum er mikill þrýstingur á spöngina (karlar hafa víst líka spöng) og það veldur doða og pirringi. Þetta er í rauninni mjög algengt vandamál og framleiðendur hjólreiðahnakka eru farnir að spá mikið meira í þetta. Í dag er orðið meira um að hnakkarnir séu örlítið styttri, breiðari og með svo kallað „cut out“, eða opinni rás eftir miðjunni sem á að minnka þrýsting. 

Brooklyn cycling cap

En allavega, þrátt fyrir að jólin séu að koma og visareikningurinn að fara upp úr rjáfrinu þá ákvað ég að kaupa mér nýjan hnakk. Það er bara alls ekki þess virði þegar maður hjólar svona mikið að vera illt einhversstaðar og líða illa. Þar að auki gæti þetta á endanum valdið óafturkræfum taugaskemmdum ef maður er farinn að hjóla í marga klukkutíma í beit. Ég keypti mér Specialized Power Comp sem hefur verið að fá fína dóma. En það á eftir að koma í ljós hvernig ég fíla þetta og það er alltaf svolítil áhætta að kaupa nýjan hnakk, enda mjög persónubundið hvað hentar fólki.

Já og svo víst maður var búinn að draga upp kortið þá skellti maður sér á eina Brooklyn hjólahúfu. Ekki það að ég vilji líkjast Spike Lee, heldur er þetta gott fyrir svona skallapoppara, bæði í heitu og köldu veðri. Hlakka til að prufa hana.

Áðan tók ég æfingu sem heitir Zwift Academy Road: Elite Rider Test – Maximal Aerobic og var hún alger dauði. Það sem fór alveg með mig var 5 mínútna kafli þar sem maður átti að halda eins miklum vöttum og maður gat og síðan datt maður inn í 2x15 mínútur á 95-105% af FTP. Síðan átti maður að ljúka henni á öðru 5 mínútna max efforti en ég ákvað að sleppa því. Það reyndist góð hugmynd því ég rotaðist í sófanum eftir kvöldmatinn og er alveg búinn á því. Hvíld á morgun og svo endurance á fimmtudag.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap