Mótaskrá 2022
Mótaskrá 2022 |
Þá er mótaskrá Hjólreiðasambands Íslands komin út og ég get því farið að laga æfingaplanið eftir henni. Ég var að fletta aftur í gömlum færslum og skoða upprunalegu pælingarnar mínar varðandi plan fyrir veturinn og sé núna að ég þarf aðeins að passa mig ef ég ætla að toppa á réttum tíma. Ég má ekki vera búinn að brenna upp allar eldspýturnar í byrjun apríl.
Þetta snýst í rauninni um að byrja á "base phase" (grunninum) núna strax eftir áramót með lyftingum og byggja upp þolið- en skipta svo ca. 6 vikum fyrir aðal keppnina (Íslandsmótið) yfir í meiri ákefð og það sem kallað er "race specific" æfingar. Eftir því meira sem maður les, þeim mun ruglaðari verður maður. Áherslurnar í æfingunum snúast líka að mjög miklu leiti um hvað maður getur séð af miklum tíma í þetta. En ég þarf að fara að negla eitthvað niður og mjög mikilvægt að vera ekki alltaf að hræra í þessu. Ég er allavega búinn að ákveða að fara "all in" í þetta og æfa eins og sjúklingur.
Eins og fyrr segir stefni ég að því að toppa í kringum Íslandsmótið og ef ég fer á eitthvað af þessum bikarmótum þá er það bara hugsað sem æfing og til að safna í reynslubankann. Mývatnshringurinn hittir reyndar sennilega á sama tíma og bikarmót no. II- þannig þar þarf ég að velja. Ef maður vill vera með í bikarmótunum þarf maður allavega að klára 3.
Íslandsmótið verður hérna fyrir norðan og því ætti ekki að vera mikið vesen að taka þátt í því. Ekki er búið að ákveða leiðina en mér finnst líklegt að farið verði frá Jarðböðunum, niður í dali og svo upp Hólasand- sennilega í kringum 100 km fyrir mastersflokkinn sem ég keppi í.
Ég setti inn eitt Tindsmót að gamni en veit s.s. ekkert meira um það mót og það er nú bara þarna svona til að hafa eitthvað í bakhöndinni. Þann 21. ágúst er svo Íslandsmótið í Criterium og ég setti það líka inn til að ögra sjálfum mér. Það var stórt skref fyrir mig að keppa í fyrsta götuhjólamótinu og það verður ennþá stærra skref að þora að skrá sig í crit-mót. Þar er hjólaður minni hringur með fullt af keppendum og allt á útopnu allan tíma og töluverðar líkur á árekstrum og pústrum. Ég hef horft mikið á crit keppnir á netinu og maður er oft með hjartað í buxunum bara við að horfa á þetta. Hlekkja hér undir eina YouTube klippu að gamni en hafið í huga að þetta er pro race:
Að lokum, Ormurinn á Egilsstöðum er ekki kominn með dagsetningu en mig langar að keppa þar aftur. Það verður að öllum líkindum um miðjan ágúst.
Ummæli