Jólaálfur
Helvítis jólaálfurinn búinn að klippa blómin |
Ég lét það eftir Dabjörtu Lóu að kaupa jólaálf í Nettó. Fjölskylda vinkonu hennar er búin að vera með einn slíkan þennan mánuðinn og er hann búinn að valda miklum usla á heimilinu, t.d. blandar hann mjólkina með matarlit og skreytir jólatréið með nærfötum. Ég ætlaði að ekki að láta þetta eftir henni en þessi barnslega trú sem skein út úr augunum og eftirvæntingin eftir einhverjum yfirnáttúrulegum ævintýrum varð yfirsterkari.
Við s.s. keyptum blessaðan álfinn og göngum alltaf frá honum á sinn stað áður en börnin fara að sofa. Á næturnar fer hann svo á stjá og gerir einhver skammarstrik. Fyrstu nóttina klippti hann niður eldhúspappír og fékk sér Bríó bjór og í nótt tók helvítið skæri og klippti niður kóleusinn í stofunni. Það er óskaplega gaman að fylgjast með Dagbjörtu sem náttúrulega trúir þessu eins og nýju neti. Brynleifur hefur mjög gaman að þessu líka þó hann viti nú alveg hvað er á seiði.
Það lítur því út fyrir að við séum komin með nýja jólahefð sem bætist við að setja skóinn út í glugga og spurning hvort þetta endist 1 eða 2 ár í viðbót. Í augnablikinu er þetta miklu meira spennandi en skórinn og það fyrsta sem Dagbjört gerir þegar hún vaknar er að stökkva fram og leita af álfinum.
Í síðustu viku lagði ég inn umsókn um starf teymisstjóra í teymi lífríkis- og veiðistjórnunar hjá Umhverfisstofnun. Mín umsókn var sú eina sem barst og er það mál komið í formlegt ferli. Ég fer á fund um málið á næstu dögum og reikna passlega með að ég fái starfið. Ef af verður, þá mun þetta væntanlega breyta töluvert hjá mér vinnunni og krefjast meira af mér. Ég held ég hafi alveg leiðtogahæfileikana með mér í liði en þarf aðeins að skerpa á því sem snýr að skipulagi og verkefnastjórnun. Ég veit að ég fer létt með það.
Vikan á hjólinu var ágæt en þó örlítið rólegri en vikan á undan. Ég hjólaði í rúmlega 4 tíma á Zwift og er það eftir planinu sem ég setti upp fyrir veturinn. Ég er reyndar búinn að vera að lesa mig meira og meira til um æfingar og það gæti verið að ég þyrfti eitthvað að breyta áherslum út frá hvaða mótum ég ætla að taka þátt í. Eins og staðan er núna, þá er aðalmótið mitt Íslandsmótið í hjólreiðum 25. júní hérna á Norðurlandi. Ef ég fer "all in" í þetta og tek þátt í 4 bikarmótum líka, þá verður fyrsta mótið í apríl á Suðurnesjum. Ef ég tek þátt í bikarmótunum þá þarf ég að fara mun fyrr inn í uppbyggingarfasa og það gæti þýtt 7-10 klst á viku fljótlega eftir áramót. En ég bíð spenntur eftir að sjá endanlega mótaskrá frá Hjólreiðasambandi Íslands.
Ummæli