Form og ferskleiki
Form og ferskleiki beint úr Strava. |
Þessi vika hefur einkennst af æfingum og og og …. og já, og eiginlega ekki neinu öðru en æfingum. Ég hef aldrei nennt að rífa mig á fætur fyrir vinnu til að hjóla en nú er ég farinn að spá í hvort það sé ekki eina leiðin til að koma einhverju öðru í verk. Í þessari viku hef ég komið heim, hjólað, farið í bað, borðað og svo bara ekki nennt að gera neitt annað, sama hvað það ætti nú að vera.
Markmiðið hjá mér í æfingum síðustu 2 mánuði hefur verið að viðhalda forminu en þegar ég skoða Strava sé ég að ég hef verið að gera gott betur en það eins og myndin hérna uppi sýnir. Þar sér maður hvernig formið hefur verið að fara upp síðan í vor (3600%!). Fyrri rauði punkturinn er fyrsta keppnin mín (Mývatnsshringurinn) og formið nær svo toppi eftir hjólaferðalagið mitt og Orminn (hinn rauði punkturinn). Svo slaka ég aðeins á en hef verið á uppleið aftur og er eiginlega að komast í sama form og í sumar, eins langt og þessar upplýsingar ná.
Núna þarf ég að fara að hugsa þetta allt betur út ef ég ætla að toppa 25. júní þegar Íslandsmótið í götuhjólreiðum fer fram hérna fyrir norðan. Eftir áramót ætla ég að fara að keyra eftir Polarized æfingaplani og bæta lyftingum inn í. Polarized prógrömm samræmast betur minni fílósófíu í æfingum, þ.e. magn umfram ákefð. Þar keyrir maður 80% af tímanum í rólegheitum og hefur 20% á mjög mikilli ákefð. Ég hef aðeins verið að missa sjónar á þessu upp á síðkastið og keyrt óþarflega hart.
Þó ég geti alveg búið til allar mínar æfingar sjálfur í Zwift þá væri gott að finna einhvern til að stilla þessu upp með mér og stemma þetta af, t.d. hvernig ég blanda lyftingunum inn í þetta. Og annað við svona polarized prógrömm er það að maður þarf að hafa mikinn tíma. Þegar ég verð að hjóla sem mest verð ég örugglega kominn úr 4-6 tímum upp í 10-12 klst/viku. Þá komum við aftur að því að maður verður sennilega að vakna kl. 05:30 einhverja morgna💪
Annars ligg ég núna upp í rúmi eftir helvíti góða 40 mínútna æfingu og er að reyna að hafa mig af stað að klæða mig græja einhvern mat. Á morgun (laugardag) ætla ég að reyna að klára jólagjafakaupin og kannski ganga eitthvað frá. En fyrst og fremst ætla ég að njóta lífsins.
Ummæli