Blogg #1962 - æfing í slökun

Æfing daxins!

Rak augun í það þegar ég var að stofna þessa færslu að ég er búinn að setja inn 1962 færslur frá upphafi (2007)! Hvað ætli séu margir bloggarar sem hafa þraukað svona lengi? En að þessu tilefni fór ég aðeins að fletta í gömlum færslum- og þó að maður skilji oft ekkert afhverju maður er að þessu, þá leynast þarna ótal ljúfar minningar. Og þó að maður hafi löngum stundum eiginlega bara verið að bulla eitthvað, þá eru þetta ágætis heimildir um hvað maður hefur verið að gera, hvernig manni hefur liðið og jafnvel hvaða augum maður hefur horft á lífið. Sjálfsagt er líka eitthvað þarna sem ég gæti skammast mín fyrir en það kemur ekki til mála að ritskoða eða hreinsa til.

En núna sit ég hérna í sófanum heima hjá mér og geri mitt besta í að slappa af án samviskubits. Ég tók drullu erfiða æfingu áðan og ég bara hreinlega nenni ekki að gera neitt af viti. Það mætti kannski vera fínna hérna í kringum mig en það er allavega engin skítafýla hérna. Ég var búinn að ætla að ganga eitthvað frá en hey.... þetta fer ekki neitt. Í staðinn ætla ég bara að hanga hérna, hlusta á góða tónlist og senda skilaboð og meldingar um að myndlistaferillinn sé á ís. Ég veit alveg að ég á eftir að fara á einhvern bömmer út af því en finn samt fyrir létti að vera búinn að taka þessa ákvörðun. 

Æfingin sem ég tók var eins og ég sagði áðan, drulluerfið en ógeðslega skemmtileg. Þetta er æfing sem Mat Hayman gerði þegar hann var að undirbúa sig fyrir Paris-Roubaix árið 2016. Þá var hann handleggsbrotinn og þurfti að æfa inni allan tímann á Zwift. Það er hægt að finna myndir af honum á netinu þar sem hann liggur með hendina í gifsi á vinnutröppum. Aldrei að gefast upp segi ég nú bara.

En æfingin á s.s. að líkja eitthvað eftir því að fara yfir hinn alræmda götusteina kafla (cobblestone) á hinni sögufrægu keppnisleið Paris-Roubaix. Upphitun var róleg með 3 sprettum á ca. 600 W en svo var endalaust threshold á cadence 65 og 95 til skiptis til að grilla í löppunum, smá hvíld og svo threshold í 2x15 mín með hvíld á milli og mörgum sprettum á 320 W og allt þar fram eftir götunum. Það hljóta allir að skilja hvað ég er að fara enda er þetta mjög mikilvægt.

Annars er stefnuræða forsætisráðherra í sjónvarpinu og ég skil ekki neitt? Sú var tíðin að ég var flokksbundinn VG en sagði mig úr flokknum eftir ævintýrið við Bakka og fleira rugl. En það er sama hvernig ég reyni að skilja þessa gjörninga sem nú eru í gangi, ég fæ engan botn í þetta. Og reyndar er mér eiginlega bara að verða drullu sama. Það er bara að þrauka í 4 ár og svo endurtaka leikinn með nýrri djöflasýru.

Góðar stundir 

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap