Þrekvirki

Wahoo hjartsláttamælirinn sem hefur verið að valda mér vandræðum.

Eins og stundum áður þá hef ég verið með einhver verkefni hangandi yfir mér sem hafa verið að valda mér samviskubiti. Það er búin að vera einhver skítafýla í eldhúsinu hjá mér og ég hafði grun um að hún kæmi upp úr vaskanum. Ég veit fátt ógeðslegra en að rífa í sundur vatnslása og þrífa úr þeim og því var ég búinn að humma þetta fram af mér óþarflega lengi. Þegar ég drattaðist fram úr rúminu í morgun ákvað ég að hætta þessum aumingjaskap og óð í verkið. Til að gera langa sögu stutt, þá reif ég þetta allt í sundur, þreif þetta eins og hægt var og hjólaði svo í Tengi og keypti nýja pakkningu. Ég lét ekki staðar numið þar og þreif líka baðið, henti í þvottavélar, skipti um á rúminu, ryksugaði herbergið mitt og eitthvað fleira. Nú líður mér eins og ég hafi unnið þrekvirki.


Jon's Mix- æfingin sem ég tók í gær.

Ég er búinn að vera í smá vandræðum með hjartsláttamælinn sem ég keypti um daginn. Það er alveg agalegt þegar hann dettur út því Strava notar gögnin til að mæla æfingaálag hverrar viku. Í gær prufaði ég að taka af mér úrið á meðan æfingu stóð og það virkaði. Sennilega er tölvan mín bara með of mikið af Bluetooth dóti í gangi í einu. Æfing gærdagsins var alveg geggjuð. 3x1 mín á 360W, 5x10sek á 650W og svo 2x10 mín á 215 W til að klára þetta. Skemmtileg blanda og gaman að keyra aðeins upp spretti. Ætli ég ljúki ekki svo vikunni með 50-60 km á morgun.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap