Meira FTP
Skjáskot úr Zwift hjólaforritinu |
Nú eru ca. 2 mánuðir síðan ég byrjaði að hjóla á Zwift og tók fyrsta FTP testið mitt. Þá tók ég test þar sem maður fer í gegnum upphitun en reynir svo að halda uppi eins miklu afli og maður mögulega getur í 20 mínútur. Það getur verið erfitt að stilla það af en mér gekk samt ágætlega held ég. Þá skoraði ég 238W sem gerir 3,6 W/kg eins og ég fór yfir hérna á blogginu.
Í gær ákvað ég að tékka á því hvort mér væri eitthvað að fara fram en í þetta skiptið tók ég Ramp Test þar sem maður hjólar mjög rólega í 5 mínútur, dettur svo niður í 100W en svo er bætt við 20W á hverri mínútu og maður hjólar þar til maður gefst upp. Þetta test er mun styttra test og töluvert skemmtilegra. Það er í rauninni furðulegt hvað þreytan kemur skyndilega inn. Mér leið mjög vel alveg þar til ég var að klára 320W en þegar ég byrjaði á 340W var ég allt í einu að skíta á mig. Eftir á að hyggja hefði ég kannski getað haldið út í 10-20 sekúndur í viðbót en ég veit ekki hvort það hefði breytt niðurstöðunni mikið. Núna skoraði ég 243W (3,74 W/kg)- sem er lægra en ég vonaðist eftir.
Án þess að ég ætli að fara að hengja mig of mikið á þetta FTP þá er þetta helsti mælikvarðinn fyrir hvort maður er að bæta sig. Þess vegna var ég svolítið spældur að hafa ekki verið búinn að bæta mig meira. En þetta eru 2 ólík test og kannski er RT-ið að vanmeta FTP-ið hjá mér þar sem það hentar fólki betur sem getur verið með mikið power output í styttri tíma. Til að fá betri sýn á þetta þá ætla ég að prufa aftur 20 mínútna testið á mánudaginn í næstu viku.
En hvað sem má segja um þetta, þá er ég viss um að ég verði kominn upp í 4 W/kg næsta vor.
Ummæli