Kvitta

Útsýnið af kaffistofunni í dag

Ákvað að koma hér við og kvitta upp á miðlungs góða andlega heilsu. Ég er búinn að hafa það ágætt síðustu vikuna en í gær og í dag er búinn að koma smá niðurtúr þegar ég er að fara heim úr vinnunni. Veit ekki alveg hvað það er- allir ytri þættir virðast í lagi. En þetta er þessi leiðinda kvíðatilfinning sem hefur stundum heimsótt mig upp á síðkastið. Hnúturinn í maganum vil ég kalla þetta. Tifinningin að ég eigi eitthvað ógert með tilheyrandi sektarkennd.

En nú er ég búinn að ákveða, þvert gegn ráðleggingum minna helstu ráðgjafa, að losa mig undan þessari pressu sem ég hef verið í varðandi listsköpun. Þetta þýðir alls ekki að ég ætli að hætta alveg að mála, ég ætla bara að segja mig frá þeim pöntunum sem ég er með á borðinu núna og sjá hvort það geri ekki gott fyrir mig. Þegar ég byrja aftur ætla ég að gera það á mínum forsendum og taka ekki pantanir (hef nú sagt það 1000 sinnum áður).

Ég er líka búinn að vera með það hangandi yfir mér að koma stóra teikniborðinu fyrir inni í stofu og gera eitthvað voðalegt fínt stúdíó. En miðað við afköstin upp á síðkastið langar mig einfaldlega ekkert til að fara í þessar breytingar. Ég ætla að losa mig við borðið og þegar ég kemst af stað aftur, þá kannski skoða ég aðstöðuna upp á nýtt. Að lokum, þá ætla ég að finna sköpunarþörfinni einhver annan farveg í bili og það verður til að byrja með sennilega meiri skrif en málerí. Í því sambandi er ég að glugga í mjög gömlu handriti sem aldrei hefur verið gefið út. Meira um það síðar.

Annars er bara allt fínt. Ég er búinn að æfa eins og skepna og éta eins og kóngur. Var að taka að mér risaverkefni í vinnunni og er að hugleiða hvort ég sæki um stöðu teymisstjóra líka, sem myndi auka mikið ábyrgð mína og kannski færa meira líf í vinnuna. 

Hjólaði í bæinn áðan og skilaði bókum á bókasafnið. Tók líka einhverjar barnabækur til að lesa fyrir börnin og náði mér í Stríð og klið eftir Sverrir Norðland. Þegar ég kom heim tók ég erfiða styrktaræfingu og er að fara að malla mér eitthvað að éta. Á morgun er snörp en stutt æfing á hjólinu. Núna er ég búinn að læra að setja upp mínar eigin æfingar í Zwift og það er geggjað gaman og mikill munur.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap