Money money money

Wahoo hjártsláttamælir.

Ég er búinn að vera með hjartað í buxunum fyrir þessi mánaðarmót (tengist ekki hjartsláttamælinum beint). Ofgreidd laun frá Háskólaráði (hef aldrei setið í því) sem ég varð að endurgreiða, óvænt símakaup og annað misskemmtilegt varð til þess að ég var að verða kominn með allt í skrúfuna. Ég þurfti að fá mér yfirdrátt og fá lánaða peninga hjá Þórði og mömmu. Ekki skemmtilegt að vera í þessari stöðu á sama tíma og maður horfir á skuldabréf hækka og reikninga frá Akureyrarbæ sömuleiðis. Eftir að Dagbjört Lóa byrjaði í skólanum hækka greiðslur til bæjarins um hátt í 15 þúsund krónur á mánuði og nú greiði ég ca. 45 þúsund á mánuði. Hússjóðurinn hjá mér er líka kominn upp úr öllu valdi vegna framkvæmda næsta sumar og ég varð að bæta á mig betri tryggingum. Útgjöldin eru að aukast á öllum vígstöðvum.

En áðan fékk ég greitt úr Ríkissjóði og endurgreiðsla frá skattinum bjargaði þessum mánaðarmótum. Nú á ég bara eftir að borga mömmu og yfirdrátturinn verður að fá að malla eitthvað áfram. Eins og venjulega var ég búinn að mála skrattann á vegginn og hélt að endalokin væru að nálgast. En nú þarf ég bara að drullast til að hreinsa aðeins til í byssuskápnum mínum og mála 5 myndir sem ég skulda og þá horfir þetta allt betur við. Það er líka eins gott því ég ætla að bjóða börnunum til Danmerkur og Svíþjóðar næsta sumar.

Ég var víst búinn að lofa sjálfum mér samfélagsmiðlabanni í október en var búinn að gleyma því í morgun. Ég tók fíknirúntinn minn í bælinu áður en ég fattaði að það væru komin mánaðarmót. Tilfinningin um að slökkva strax á þessu öllu var óhugnaleg. Ég fann virkilega fyrir því hvað ég er orðinn háður þessu og gat hreinlega ekki hugsað mér að fara inn í helgina án þess að fá dópið mitt, sérstaklega á morgnana. Ég hef því ákveðið að byrja bannið á mánudaginn. Ég fæ kaldan svita bara af því að hugsa um það.

Í gær hringdi ég í Kría hjól og pantaði mér hjartsláttamæli sem vonandi dettur í hús á mánudaginn. iWatchi-ið mitt var ekki að tala við riðilinn (ég er s.s. búinn að finna íslenskt orð á "trainer") og það hefur meiri áhrif en ég hélt á allar upplýsingar um hvernig mér gengur að æfa. Ég keypti mér Wahoo (sama týpa og riðillinn) og svo mun ég örugglega kaupa mér hjólatölvu frá sama framleiðanda við tækifæri. 

Ég er búinn að hjóla 60 km í þessari viku að frátöldum samgönguhjólreiðum. Ég ætla að taka eina netta æfingu seinnipartinn og svo eina lengri í fyrramálið. Ég fann ekkert rosalega mikið fyrir FTP testinu en er samt með smá strengi í kálfunum. Það er einmitt það sem hefur komið mér einna mest á óvart við hjólreiðarnar, hvað þetta reynir mikið á kálfana á manni. Ekki veitt mér af og það rifjast upp fyrir mér þegar ég fór til Sólu Þráins í göngugreiningu og hún sagði "drengur, þú ert með kálfa eins og kerling". 


Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap