Matur
Lóa á leið í sýnatöku á föstudaginn í síðustu viku. Hún stóð sig eins og hetja. |
Dóttir mín að lýsa matnum í skólanum:
Það var eitthvað svona í matinn, man ekki hvað það heitir, kjöt sem er eins og mold og svo var svona eitthvað langt með sem er eins og núðlur.
Það var s.s. hakk og spaghetti.
Þetta er ótrúlega krúttleg setning hjá dóttur minni og er góð og gild sem gullkorn frá litlum spekingi. En hún hafði samt einhver áhrif á mig og kveikti hugrenningatengsl við ósjálfbæra og oft ómannúðlega (ættum kannski frekar að segja ódýrúðlega) matvælaframleiðslu. Hakkaður brúnn kjötgrautur, sem lítur út eins og mold. Namm.
Ummæli