Hvað getur þú gert?

Dagbjört í verslunarleiðangri með mér í Bónus.

Ég hef alltaf verið þeirrar skoðunar að loftslagsváin verði aldrei leyst nema ofan frá. Þ.e. stjórnvöld verði að taka forystu í málinu og þröngva upp á okkur aðgerðum sem munu breyta lífi okkar meira en við getum ímyndað okkar (og viljum). Því miður. Lengi vel var ég þeirrar skoðunar að það að taka upp hjá sjálfum sér einhverjar hjákátlegar aðgerðir, eins og að flokka rusl eða selja bílinn sinn, væri eins og að öskra á beina útsendingu í fótbolta til að hafa áhrif á niðurstöðu leiksins. Eitthvað sem væri frekar gert af sjálfselsku til að líða betur. "Ég lagði mitt af mörkum, ég flokkaði rusl".

Þrátt fyrir þetta hef ég sjálfur verið að feta mig í átt að umhverfisvænni lífsstíl og er það frekar að ágerast. Ég á ekki bíl, ég er farinn að borða meira grænmeti og ég hugsa mig virkilega vel um þegar ég skipulegg ferðalög. Ég keypti mér ekki ný föt í heilt ár, ég flokka rusl og geng með það í grendargám og ég reyni að forðast það að kaupa eitthvað óþarfa rusl fyrir börnin. Ég er lika farinn að kaupa mun oftar föt og skó í Rauða krossinum, svona til að nefna eitthvað.

Í grein sem birtist á vef BBC er farið yfir 10 áhrifaríkustu leiðirnar sem fólk getur farið til að minnka kolefnissporið sitt og eru niðurstöðurnar byggðar á 7000 rannsóknum. Það sem er ánægjulegt við þetta er að það er eiginlega stax hægt að þurrka út nokkur atriði búi maður á Íslandi. Þau atriði snúa að því forskoti sem við höfum vegna umhverfisvænna orkugjafa og góðrar einangrunar húsa. En það eru þarna þættir sem mig langar að nefna.

Bíllaus lífsstíll og almenningssamgöngur skora hæst í einstökum þáttum. Ég átta mig alveg á því að það geta ekki allir verið bíllausir, sérstaklega ekki fólk í dreifbýli. En þurfum við virkilega undantekningalaust að nota bílinn? Getum við notað almenningssamgöngur, gengið eða hjólað 2-3 í viku og skilið bílinn eftir heima? Gætu ekki einhverjir átt rafmagnsbíl til að nota innanbæjar og svo bara leigt bíl þegar á að fara úr bænum? Getur fjölskyldan ekki selt annan bílinn? Getum við skipulagt okkur betur? Er ekki hægt að kenna börnunum að fara sjálf í strætó á æfingar? Geta börnin ekki gengið og hjólað í skólann?

Kjötframleiðsla og mjólkurafurðir standa undir 14,5% af útblæstri gróðurhúsalofttegunda skv. Carbon Briefing. Það er rosalegt! Þetta virðist hinsvegar vera það sem við eigum hvað erfiðast með að sætta okkur við. Það þarf ekki einu sinni að vera vísindalegur afneitunarsinni, heldur lokum við bara augunum, stingum puttunum í eyrun og öskrum "LA LA LA LA...ÉG VIL EKKI HEYRA ÞETTA". Kjöt og mjólkurframleiðsla orka tvímælis bæði út frá dýravelferðarsjónarmiðum (misjafnlega mikið eftir dýrategundum og framleiðslu) og svo er það þessi skelfilegi útblástur.

Ég er ekki viss um að mig langi til að gerast vegan, en ég er tilbúinn til að skera helling niður kjötneysluna. Ég á erfiðara með mjólkurafurðirnar, en sá bransi er vægast sagt á siðferðilega gráu svæði og því velti ég því fyrir mér. En í öllu falli er nauðsynlegt að draga úr áti á kjöt- og mjólkurafurðum og það er líka gott fyrir okkur sjálf.  Rannsóknir sýna að of mikil neysla á rauðu kjöti getur aukið líkurnar á sykursýki, ristilkrabbameini og hjartasjúkdómum og þar með hækkað almennt líkur á snemmbúnum dauða. Önnur rannsókn sýndi að aðeins 2 máltíðir á viku af rauðu kjöti eða unnum kjötvörum jók líkur á hjartaáfalli (heart attack or stroke) um 3-7% og dauða af völdum annara sjúkdóma um 3%. Og svo bendir flest til þess að fæða sem inniheldur mikið grænmeti, baunir, fræ, góðar olíur og fisk sé það sem við eigum að éta til að lifa góðu og heilbrigðu lífi. Flettið því bara upp, ég nenni því ekki. En þessi pistill átti s.s. aldrei að fjalla um heilsu.

En ef við tökum að lokum saman áhrif þessara framleiðslu á jörðina, dýravelferðarsjónarmið og eigin heilsu- og spyrjum okkur að því hvort það sé virkilega ekkert sem við séum tilbúin að breyta? Hvað borðið þið margar kjötmáltíðir í viku? Getið þið skorið niður um eina, eða jafnvel tvær? Það skiptir allt máli.

Skera niður eina langa flugferð á ári. Réttið upp hönd þið sem hafið hent ykkur til útlanda í 2-3 daga bara vegna þess að það var eitthvað truflað tilboð í gangi og ekki hægt að sleppa því? Þurfum við endilega að vera endalaust á þvælingi út og suður? Getum við farið færri ferðir og verið frekar lengur í staðinn? Getum við flogið á einhvern áfangastað og svo notað almenningssamgöngur til að ferðast milli staða?  

Ég vil taka fram að ég varð hiss að sjá ekki eitthvað í þessari grein sem tengist textíl eða neyslu almennt á einhverjum óþarfa, eins og að kaupa rusl í tengslum við hrekkjavöku, panta ódýr föt og dót á Aliexpress eða eitthvað drasl fyrir börin sem þau leika svo aldrei með. Aðrar greinar sem ég hef verið að skoða koma inn á þessi mál og ég er viss um að við öll getum gert betur í þeim efnum.

En ástæðan fyrir því að ég fór að hripa þetta niður er einfaldlega sú að ég er orðinn svartsýnn á að stjórnvöld muni hafa kjark og þor í að ráðast í þær aðgerðir sem til þarf. Ég bíð reyndar spenntur eftir hvað gerist á COP26 í Glasgow en nýjustu fréttir og skýrslur frá Sameinuðuþjóðunum og NASA eru kolsvartar. 

En sama hvort mínar hjákátlegu tilraunir til að leggja eitthvað af mörkum í þessum efnum skipta máli þegar öllu er á botninn hvolft, þá finnst mér ég allavega ekki geta setið hjá og gert ekki neitt. 

Það er enginn að tala um að allir þurfi að vera bíllausar grænmetisætur allan daginn og aldrei fara til útlanda. Byrjum bara á því að gera eitthvað smá en gleymum því ekki að það er ekki nóg að velja bara einn þátt út sem er hentugastur til að fá frítt spil í öllu hinu. Það er engin afsökun að vilja ekki skera niður kjötát bara vegna þess að einhverjir aðrir þættir séu svo stórir. Það er allt undir. Ég skora á ykkur að hugsa út í þetta og gera en betur. Hér er smá hugmynd til prufu í einn mánuð:

  • Hafa 2 grænmetismáltíðir í viku
  • Skilja bílinn eftir heima tvisvar í viku
  • Fara í gegnum föt og dót og gefa
  • Ef þið eruð ekki að flokka, gera það til prufu þó það sé ekki nema 2-3 flokkar
Getið þið ímyndað ykkur hvað það hefði mikil áhrif ef allir á landinu myndu gera þetta í heilt ár?

 

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap