Gluggatjöld
Sól lækkar á lofti og senn mun það falla í gleymskunar dá að ég á eftir að kaupa mér gluggatjöld. |
Þá erum við komin heim eftir frábæra ferð í borgina. Við skelltum okkur m.a. í leikhús og gamli karlinn sýndi tækni sína og líkamsstyrk í þrautabrautinni og á trampolínunum í Rush. Ég ætlaði fyrst ekki að þora að fara þarna inn en svo reyndi maður að minna sjálfan sig á að það er allt í lagi að vera asnalegur og enginn að velta því fyrir sér. Maður er víst ekki nafli alheimsins. Á endanum óð ég um salinn eins og óður hani í mannaskít og skemmti sér mjög vel.
Ekki var mikið um matarupplifanir í ferðinni og ég hefði s.s. alveg verið til í að prufa eitthvað nýtt og spennandi. Í staðinn fórum við á Eldsmiðjuna (hún var fín), KFC og Stjörnutorg. Síðan átum við vel af snakki og ógeði og maður er ennþá með 2 kg af bjúg framan í sér. En dítoxandi spínathræringar eru að hjálpa til við að láta þetta leka af manni.
En þessi vika hér á Akureyri byrjar ágætlega. Veðrið hefur fallegt fallegt og stillt og veturinn lætur enn ekki á sér kræla. Við börnin erum ekki með neitt á prjónunum frekar en venjulega, nennum ekki að skipuleggja. Það verður bleikja í kvöldmatinn og sundferð eftir skóla í dag. Plönin ná ekki lengra en það.
Þegar ég kom heim á sunnudagskvöldið ætlaði ég að hjóla aðeins en klukkan var orðin svo margt að ég sleppti því. Í staðinn ætlaði ég að taka smá æfingar en þegar ég fór að gera upphífingar fann ég að ég var með strengi eftir þessa ferð í Rush, sem mér fannst svolítið krúttlegt. En ég tók æfingu í gær á hjólinu og rúllaði 4 hringi í heimaæfingum. Í dag þarf ég að hjóla ca. 10 km í útréttingar og ætla svo að taka æfingar fyrir sundið. Á morgun er svo brútal threshold æfing á hjólinu sem ég hlakka til.
Ummæli