|
Æfingaplan vetrarins eins og það lítur út núna. |
Ég er búinn að vera að velta mikið fyrir mér hvernig ég ætla að byggja upp æfingaplan fyrir veturinn. Eins og ég kom inn á hér um daginn var ég annarsvegar að spá í að borga áskrift af "Adaptive Training" hjá Trainerroad, eða að hafa samband við þjálfara. En miðað við framfarirnar hjá mér síðasta sumar og þá staðreynd að ég er þokkalega læs og skynsamur, þá ákvað ég bara að byggja upp plan sjálfur.
Planið er byggt upp í þremur 3 mánaða blokkum þar sem ákefð og tímar á hjólinu (volume) eykst hægt og rólega. Fyrstu 3 mánuðina er ég að hjóla 4 klst á viku, en verð kominn upp í 7 þegar ég er að fara út í sumarið. Þegar ég get farið að hjóla úti ætla ég bara að að hafa gaman og gera það sama og ég var að gera síðasta sumar. Ég set þetta að sjálfsögðu upp með fyrirvara um að flytja æfingar eitthvað til innan hverrar viku.
Ég held að þetta ætti að vera nóg til að ná þeim markmiðum sem ég er búinn að setja mér. En ég ætla að fara aðeins yfir hvað ég á við með hverri æfingu:
- Klukkari : 1 klst hæfilega erfitt
- Easy 1,5 : 1,5 klst hæfilega erfitt
- Intensity : Tempó/Over under/ Threshold etc. (mikið effort)
- Long : Endurance (frekar rólegt og langt)
- TFW : Training for Worriors (styrkur)
Annars erum við Dagbjört Lóa bara að dunda okkur heima í sóttkví. Hún fer í Covid test í fyrramálið og þegar niðurstaða kemur úr því fer hún væntanlega til mömmu sinnar og verður þar fram á mánudag. Við höfum haft það skínandi gott og höfum hangið í tölvu og síma, étið kanilsnúða og Oreo, púslað, málað og hún er búin að gera fullt af afmælisgjöfum fyrir bróðir sinn sem á afmæli á mánudaginn. Og svo er ég náttúrulega að reyna að vinna eins og ég get.
Ég hjólaði ekki í dag en tók fína over/under æfingu í gær sem snýst um að fara upp á tempó sem er meira en maður getur haldið út í langan tíma, en detta svo aftur niður í tempó sem er ennþá krefjandi. Síðan fær maður hvíld á lágu efforti og endurtekur leikinn tvisvar í viðbót. Þetta er gert til þess að þjálfa vöðvana í að auka súrefnisupptöku og að losa sig við niðurbrotsefni eftir erfiði og jafna sig. Þetta líkir í rauninni eftir því að vera í keppni og þurfa að taka erfiða brekku en samt þurfa að geta keyrt áfram af hörku þegar upp er komið. Af því sem maður er að æfa innandyra, þá eru svona æfingar lang skemmtilegastar og tíminn flýgur.
Annars ætlaði ég að kíkja út um helgina og fá vini í heimsókn að sunnan. En þeir þurftu að afboða sig og Þórður er að stinga af til útlanda. Ég er því hálf vegalaus. Það er samt eitthvað listadæmi í gangi í bænum og kannski kíkir maður út og spókar sig aðeins.
Ummæli