Afmæli hjá Brynleifi

Brynleifur að prufa borvélina sem við Dagbjört gáfum honum.


Vikan byrjaði ágætlega hjá okkur, enda 10 ára afmæli Brynleifs í gær. Eins og venjulega byrjaði dagurinn með steiktum lummum og pökkum í bítið. Ég vaknaði kl. 06:30 og hjólaði niður í Aðalstræti. Þegar ég var að koma niður Spítalaveginn tók á móti mér indælis lummulykt og ég vissi að ég var á réttri leið. Eftir það hjólaði ég í gegnum miðbæinn og upp í vinnu. Guð minn almáttugur hvað það er næs að ferðast um á hjóli þegar veðrið er gott og bærinn svona fallegur.

Eftir vinnu sótti ég Dagbjörtu Lóu í skólann og við tókum strætó niður í Þórunnarstræti og gengum svo í gegnum Lystigarðinn sem skartar sínu fegursta þessa dagana. Þaðan fórum við niður í Aðalstræti þar sem var smá fjölskylduhittingur og kökur. Í gærkvöldi fékk svo Brynleifur að velja kvöldmat og að sjálfsögðu valdi hann Serrano, sem er í miklu uppáhaldi. Við buðum Dóru frænku með og skemmtum okkur konunglega.

Við höfum nú ekki planað mikið í vikunni frekar en venjulega. Bara hefðbundið fjölskyldulíf og krossum fingur að við lendum ekki í sóttkví aftir. Ég er aðeins að komast í gang við að mála og í fyrsta skipti í meira en ár finn ég smá neista. Það er ótrúlega góð tilfinning.

Ég hafði ekki tíma til að taka æfingu í gær en færi hana bara yfir á daginn í dag. Það verður rólegur klukkutími og svo tempó/intese æfing á miðvikudag eða fimmtudag. Byrjaði að taka eina 30 mínútna brennsluæfingu í gær en fann strax að ég var þreyttur og hætti eftir 10 km. Í efriparts æfingum hef ég verið að leggja áherslu á upphífingar og er búinn að skrá þær samviskusamlega hjá mér. Á morgun er kominn einn mánuður og þá verður uppgjör.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap