Af æfingum

 
Ég og Spaði sem Dagbjört Lóa gerði á Lundarseli.

Ég var að spá í að hafa þennan pistil um hagræn áhrif covids og uppbyggingar göngueildar í úthverfi Reykjavíkur en á síðustu stundu breytti ég yfir í að tala bara um æfingar og mat. Þannig þið getið bara slökkt á vafranum ef þið nennið þessu ekki.

Nú er ég rúmlega hálfnaður inn í æfingalotuna í þessari viku og það hefur bara gengið vel. Ég hef reyndar sennilega verið að keyra á óþarflega háu tempói á „rólegu“ æfingunum, en á móti kemur er að ég fæ aldrei strengi og er bara sprækur. 

Threshold æfingin- útkeyrsla úr Strava.

Í fyrradag tók ég threshold over/unders sem var 2x12 mínútur. Æfingin snýst um að fara yfir FTP gildið sitt í eina mínutu (mesta afl sem ég get haldið í klukkutíma) og svo er „hvíld“ í eina mínútu sem er rétt undir FTP-inu (1+1x6min). Þetta er erfiðasta æfing sem ég hef tekið og í fyrra settinu sá ég ekki fram á að geta klárað þetta. En ég setti undir mig hausinn og þraukaði. Þegar ég var að hjóla mig niður var ég byrjaður að fá krampa í kálfana en það var fljótt að brá af mér þegar ég steig af hjólinu. Ég fann heldur ekki fyrir þessu daginn eftir.

Hámarskpúlsinn hjá mér ætti skv. hefðbundinni skilgreiningu að vera 176 (220-44 (aldur). En hér sést vel hvernig hann stígur með lengd æfingarinnar þó ákefðin hafi verið jöfn. Enda var ég orðinn helvíti lúinn í lokin.

Æfingarnar sem ég er að taka eru ennþá settar upp eftir FTP gildinu sem ég fékk úr FTP testinu í Zwift (238W) en útfrá aflkúrfunni í Strava er ég með FTP upp á 245 (3,7 W/kg). Ég hef grun um að seinni talan sé réttari en æfingin var samt alveg nógu erfið og ég hugsa að ég taki ekki annað FTP test fyrr en um jól. Til að klára vikuna hugsa ég að ég taki eina rólega æfingu í dag og svo 2 klst. á laugardaginn.

Annars var ég að fara yfir það inni á Strava hvað ég er búinn að nota trainerinn mikið síðan ég keypti hann. Ég tók fyrstu æfinguna 12. september og er búinn að hjóla 663 km sem gerir 14 km/dag. Meðaltal á dag segir svo sem ekki neitt en það er gaman að velta þessu fyrir sér þar sem þetta er hrein viðbót við samgönguhjólreiðar og verður gaman að sjá árangurinn næsta sumar.

Eftir óþarflega mikið sukk síðustu 2 vikur hef ég verið að reyna að stilla af mataræðið og það gengur ágætlega. Ég er að komast aftur niður í þá þyngd sem ég ætla að halda í vetur eftir að hafa bætt á mig 2 kg eins og hendi væri veifað. Ég hugsa að hluti af þessu hafi bara verið vökvi en þetta er fljótt að breytast ef maður sleppir fram af sér beislinu.

En talandi um vökva! Ég hef verið að skrúfa niður hjá mér kaffidrykkjuna í vetur og það gengur bara ágætlega. Ástæðan fyrir því var sú að kaffibollinn sem ég fékk mér alltaf eftir kvöldmat var farinn að valda mér svefnvandamálum og svo var maður símígandi. Núna drekk ég yfirleitt síðasta kaffibollann í vinnunni milli klukkan tvö og þrjú og það er bara fínt. Ég fór að drekka stóran bolla af te eftir kvöldmat og fór vel í mig.

En í Reykjavík fór ég í Nespresso búðina og keypti mér dýrindis koffínlausan espresso til að geta fengið mér einn bolla með kvöldfréttunum. Fyrstu þrjú kvöld vikunnar var eins og ég hefði fengið mér venjulegt kaffi að því leiti að ég var alltaf að fara á klósettið. Í gærkvöldi prufaði ég svo að fá mér te og viti menn, ekkert vandamál.

Þetta kom mér virkilega á óvart og ég fór eitthvað að gúggla og sýnist í fljótu bragði að koffínlaust kaffi hafi þvagræsandi áhriff rétt eins og venjulegt kaffi. Aldrei má ekki neitt! Jæja en vonandi eigið þið góða helgi elskurnar.


Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap