Whaoo Kickr Core

Pyntingarklefinn næstum klár.

Á fimmtudaginn fékk ég í hendurnar "trainerinn" sem ég var að bíða eftir. Það var reyndar fín spá fyrir föstudaginn og því ákvað ég að bíða aðeins með að setja hann upp og átti frábæran túr í fínu veðri. Í gær (laugardag) dundaði ég mér svo við að færa til í herberginu, þrífa hjólið og ná kasettunni af afturgjörðinni. Þetta gekk í raun allt eins og í sögu, ef frá er talið að tengja púlsmælinn í iWatchinu við þetta allt saman. Ég ætla að kaupa mér Wahoo hjartsláttamælir sem tengist beint við þetta og þá er málið dautt. 

Eftir morgunkaffið í morgun skellti ég svo fartölvunni upp á náttoborðið fyrir framan mig, setti psychadelic techno í eyrun og fór til London að hjóla. Með smá prufurúnti voru þetta rúmlega 45 km og mikið af brekkum. Ég var meðvitaður um að það myndi verða heitt, en maður minn hvað þetta var á öðru leveli en ég bjóst við. Ég varð gjörsamlega holdvotur og það voru pollar á og undir mottunni þegar ég var búinn. Ég er því búinn að gera smá innkaupalista sem ég þarf að drífa í að versla:
  1. Meira af litlum handklæðum
  2. Spreybrúsa með hreinsiefni
  3. Viftu
  4. Púlsmæli
En þetta gekk s.s. allt vel og ég tók helvíti vel á því. Ég hef ekki verið með wattamæli á hjólinu og því var forvitnilegt að skoða hvað ég var að skila miklu afli. Ég var að meðaltali með 195 W sem gerir 3 w/kg sem er sú mælieining sem oftast er horft á þegar verið er að skoða hvað hjólarar eru sterkir. Og þessi tala er bara fín, sérstaklega miðað við að þetta var bara æfing. Þegar ég fæ svo púlsmæli prufa ég svo að finna út FTP skorið mitt (Functional Threshold Power) sem segir til meðalfjölda watta sem ég get haldið út í klukkutíma. Það er fundið út með sérstöku testi í Zwift forritinu og tekur 20 mínútur (klukkutíma með upphitun og niðurhjóli). Þetta er í rauninni eitthvað sem maður verður að gera til að fylgjast með framförum, sérstaklega þegar maður er að hjóla inni. Þetta er í rauninni bara eins og að fylgjast með því hvað maður er að bæta sig í lyftingum. Anywho...

Ég þarf fljótlega að finna mér eitthvað gott æfingaprógram því þó þetta hafi ekki verið leiðinlegt, þá sé ég mig ekki í anda hjóla tímunum saman á þessu. Ætli maður byggi ekki upp prógram fyrir veturinn sem eru 3 æfingar í viku og taka þær af krafti.

Kannski að ég bæti því við hérna í lokin að mig langar voðalega til að finna gott íslenskt heiti á "trainer". Ég hugsa málið og kemur með uppástungur.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap