Ferskur blær

Skaplegri aðstæður.

Þá er frábærri helgi lokið og saltfiskurinn tekinn við. Ungarnir eru farnir úr kotinu en ég hef s.s. ekki tíma til að láta mér leiðast. Dóri er að detta í hús á eftir og ætlar að fá gistingu í nótt. Við ætlum að éta eitthvað gott og skella okkur svo í pottinn í Þelamörk með Þórði. Árlega gæsaferðin er um næstu helgi og því stutt vika í vinnunni.

Ég var búinn að vera að velta fyrir mér hvernig viftu ég geti notað við þetta innihjólarí eftir allt svitabaðið hérna um daginn. Ég var ekki alveg viss hvort venjuleg borðvifta væri nógu öflug þannig ég fékk eina lánaða í vinnunni í gær. Það kemur á daginn að þetta er allt annað líf og ég svitnaði mikið minna en í hin skiptin. Ég hjólaði reyndar ekkert rosalega langt og ætli ég prufi hana ekki í nokkur skipti í viðbót áður en ég fjárfesti í einni slíkri.

Ég er að nördast á fullu þessa dagana við að byggja mér upp æfingaplan fyrir veturinn. Ég hugsa að ég sé að detta inn í off season á hjólinu og næstu 3 mánuðir verði frekar rólegir. Ég stefni að 3 viðhaldsæfingum í viku og ætli ég kaupi mér ekki líka kort í Training For Worriors til að styrkja mig. Síðan ætla ég smám saman að auka álagið í þriggja mánaða blokkum fram á sumarið. Ég er að setja þetta allt upp í Excel og birti fljótlega.

Ég hjólaði 7,5 km í dag í samgönguhjólreiðum og tók reyndar nokkuð vel á því. Síðan er ég að spá í að taka eina netta æfingu á morgun og hvíla svo bara út vikuna.


Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap