Af eldhúsinnréttingum og lífinu almennt.

Þunga eldhúsinnréttingin

Þessi vika hefur bara farið ljómandi vel af stað. Það er allt búið að vera á hvolfi í vinnunni og það er fínt. Verkefnin hafa verið þess eðlis að ég veit til hvers er ætlast af mér og hvað ég á að gera, og þá líður manni vel. Ég get samt skilið við verkefnin þegar ég fer heim og hugsa ekki mikið um þau þess utan. Það er jákvætt. Ég hafði því rétt fyrir mér um daginn þegar ég var að tala um að þetta myndi allt fara í betra horf. Maður er alltaf að læra.

Ég er búinn að æfa eins og sjúklingur síðustu viku og éta eins og kóngur. Það er eiginlega synd að tímabilið sé að verða búið því ég held að ég hafi aldrei verið í betra ásigkomulagi. En í dag urðu stórar vendingar þar sem ég keypti mér trainer. Nú þarf ég bara að byggja upp gott plan fyrir veturinn og stilla það þannig af að ég toppi á réttum tíma næsta sumar og ég fái ekki drullu á þessu.

Trainerinn sem ég keypti heitir Wahoo Kickr Core og er svona með því besta sem hægt er að fá í þessu, allavega fyrir það budget sem ég hafði. Nú þarf ég bara að færa aðeins til í herberginu, fá mér viftu og setja upp græjurnar. Tölvan mín getur tengst þráðlaust við pyntingartækið þannig að ég þarf ekki að kaupa mér skjá í bili. Síðan getur maður skellt sér á bak og hjólað með félögum sínum í 20°C, í Paris, Róm eða á Kanarí. Ég mun birta myndir úr pyntingaklefanum þegar þetta er allt klárt.

Síðasta vor fór ég að láta mig dreyma um að breyta eldhúsinu. Hugmyndin var í raun að gera það án þess að eyða nema einhverjum tíuþúsundköllum. Planið var að rífa niður efri skápana öðru megin, setja upp opnar hillur, mála flísarnar hvítar og setja upp hugguleg ljós (hangandi). En ég fór eitthvað að ræða þetta við Þórð á sínum tíma og hann sannfærði mig um að allt í eldhúsinu mínu virkaði og því engin tilgangur í að breyta því.

En nú eru mamma og Egill komin á fullt í að breyta eldhúsinu hjá sér og mamma fór eitthvað að grilla í mér. Tala um að þessi hugmynd mín hafi verið mjög góð og það myndi létta mjög yfir eldhúsinu- og ég er sammála. Þegar ég keypti var ég pínu skotinn í þessari innréttingu frá 1976 og þó hún hafi sinn sjarma, þá er hún þung og eldhúsið svolítið niðurdrepandi. Hvenær ég fer af stað í þetta veit ég ekki. Kannski bara með vorinu.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap