Pota í nefið

Dagbjört dugleg í sýnatöku. "Mér fannst þetta gott".

Með haustinu heimsækja okkur kvefpestir og lítið við því að gera. Brynleifur er með í hálsinum og Dagbjört Lóa með hósta og hor. Ég hefði að öllu jöfnu sent börnin í skóla í dag en maður verður víst að hafa allt á hreinu og því dreif ég þau í sýnatöku. Ég hef farið í eina sýnatöku sjálfur og verð að segja að börnin voru ekki nálægt því jafn dramatísk og ég, sem kúgaðist og kúgaðist og fór hálf grenjandi út.

En við höldum okkur s.s. til hlés í dag, eða allavega þar til að niðurstaða berst. Ég er alveg viss um að þetta er bara kvef og hef ekki áhyggjur. Það er tæplega 20°C hiti og sól og ég hugsa að ég leyfi börnunum að fara aðeins út að leika ef niðurstaðan er neikvæð/jákvæð- eftir því hvernig á það er litið.

Ég hringdi í Kría hjól áðan og þeir eiga trainer á lager fyrir mig. Á morgun er víst 1. september og því ættu peningamálin að skýrast aðeins. Ég hef ekkert gert í því að selja úr byssuskápnum en hugsa að ég reyni að koma því af stað í dag. Eftir þau kaup verður ekkert hjóladót keypt fyrr en í fyrsta lagi í vor. 

Í tók brekkuspretti í fyrradag en hvíldi í gær. Við börnin tókum reyndar æfingu hérna heima í gær. Við vorum að gera upphífingar, armbeygjur og stóðum á höndum. Brynleifur vildi líka taka lappaæfingu og mundi allt í einu eftir "gömlu góðu squat-unum😊" Dagbjört Lóa er komin með upphífingarmaníu og er alveg ótrúlega hraust. Getur léttilega gert 2 "dauðar" upphífingar og fer hratt fram. Mig langar eiginlega að athuga hvort ég komi henni á klifurvegg í vetur.

En ég er s.s. ekki í vinnu í dag þó ég þurfi aðeins að vera með nefið í 3 málum sem við erum að ganga frá. Við vorum að gúffa í okkur bakkelsi úr Axelsbakaríi. Ég veit ekki af hverju maður verslar nokkurntíman við annað bakarí. Ég keypti 1/2 niðurskorið brauð, hjúpaðan snúð, hjúpaða kleinu, kleinuhring, lítið vínarbrauð og 0,5 lítra af súkkulaðimjólk á 1500 kr. Þetta hefði kostað allavega 3000 kall í Bakaríinu við brúnna.

Ég ætla að taka æfingu dagsins í hádeginu. August climbing challenge (7500 m) dúkkaði upp hjá mér á Strava í gær og ég á bara eftir 250 hækkun til að klára það. Það er fín æfing í dag. Matur hjá Halldóru kvöld. Lífið er bara fínt.



s

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap