Nokkrir punktar um fjallaferðina
Á leið niður í Eyjafjarðardal. |
Nú er þessari stórkostlegu fjallaferð ársins 2021 lokið og maður er ekki ennþá kominn niður á jörðina eða búinn að melta þetta. Í gær var ég reyndar í smá niðursveiflu og eitthvað hálf leiður. Það er bara eðlilegt þegar maður klárar eitthvað stórt verkefni sem maður hefur verið með á prjónunum lengi.
Mig langar til að gera upp þessa ferð hér í máli og myndum, en þar sem stærstur hluti af myndunum er ennþá fastur í brotna símanum mínum, þá ætla ég að byrja á því að skrifa bara punkta á meðan þetta er ferskt í hausnum á mér. Ég geri það fyrst og fremst fyrir sjálfan mig áður en þetta fellur í gleymskunnar dá. Sennilega verður það fáum til gagns eða gamans, en kannski læðist hér inn eitthvað útivistarfólk sem hefur áhuga á þessu. Nú læt ég þetta gossa í belg og biðu:
- Íslenska ullin rokkar. Ullarpeysa tekur meira pláss en dúnjakki en heldur á manni hita þó hún blotni. Ég hugsa að ég haldi áfram að nota ullarpeysu eftir þessi ævintýri.
- Það er ekki til flík sem er 100% vatnsheld og andar líka. Kaupið samt besta skeljakka sem þið hafið efni á. Þeir halda betur vatni, anda betur og eru fljótari að þorna. Fjallraven eco-shell er frábær.
- Postverslun.is selur Lyo þurrmat á frábæru verði. Í heildina fínn en mætti innihalda meiri fitu og orku.
- Það er snúið að skipuleggja matinn vel og maður þarf meira en maður reiknar með. Gott að raða skömmtunum upp eftir dögum og taka svo 2-3 daga meira en maður heldur.
- Fajitas geymist vel og eru frábær einföld kolvetni. Með hnetusmjöri er þetta algert orkusprengja.
- Sardínur eru ofurfæða.
- Vigta haframjöl, fræ og kókosflögur í zip-lock poka og skera niður þurrkaða ávexti (geyma sér). Hægt að nota pokana aftur.
- Feitar pylsur með hafragrautnum á morgnana.
- Moloko stýristaskan nýttist illa og það passar lítið dót í hana.
- Revelate töskur í stell og stýri eru algerlega geggjaðar.
- Búa til tékklista til að fara yfir alltaf þegar stoppað er- að allar töskur séu lokaðar og öll bönd föst. Það hefði bjargað símanum mínum ef ég hefði gert það fyrr.
- Ekki reyna að fara með hjólið yfir ár með töskunum á ef þær eru stórar. Fara aukaferð, þó það geti verið hrikalega kalt og leiðinlegt.
- Gæti verið gott að hafa Nokia 3310 sem backup síma.
- Hafa GPS og læra á það.
- Sérkort eru ekki vitlaus hugmynd, það er leiðinlegt að skoða kort á litlum skjá og stundum vantar örnefni (allavega á kortinu sem ég var með í GPS-inu).
- Taka jökulár alvarlega og reikna með að þurfa að bíða við þær og fara yfir snemma að morgni.
- Hafa ríflegan tíma og skipuleggja frekar eftir ám heldur en skálum.
- Vera í merino ull en ekki polyester. Þú munt lykta ógeðslega, en samt minna.
- Fara yfir hjólið á hverju kvöldi, reyna að þrífa sand, skola og smyrja.
- Taka með uppþvottalög og bursta fyrir keðju og tannhjól. Að sjálsögðu olíu líka.
- Hafa góða og sterka regnslá, hún nýtist við að borða nesti sem undirbreiða, til að breiða yfir hjólið og verja mann fyrir regni ef maður þarf að vera stopp lengi.
- Hafa góð föt til að skipta yfir í þegar komið er á áfangastað. Þetta eru líka backup föt og maður þarf að geta hjólað í þeim.
- Ef þér er að verða of heitt, of kalt eða það fer að úða- alltaf stoppa strax og breyta um fatnað. Ekki bíða.
- Gott strigateip í verkfæratöskuna.
- Reyndu allt til að halda dótinu þurru og sjálfum þér líka.
- Vaðskór eru lífsnauðsynlegir. Ég hefði aldrei farið yfir Jökulfallið eða Hagakvíslar án þeirra.
- Fara frekar í vaðskó í stað þess að reyna að hjóla yfir. Það getur verið dýrkeypt að verða blautur.
- Góður 100% vatnsheldur þurrpoki nýtist vel, t.d. til að setja í buxur og skó þegar vaðið er yfir.
- Teygjur með krókum til að strappa niður dót.
- Álagið á búnað í svona ferð er margfalt á við venjulegt hjólaferðalag.
- Reyna að koma raftækjum fyrir svo auðvelt sé að komast í þau en þau séu ekki að nuddast og skemmast.
- Rafmagn er vandamál á fjöllum. Það er ekki auðvelt að fá hleðslu í fjallaskálum.
- Skoða sólarpanel fyrir næstu ferð.
- Ég myndi aldrei hjóla norðan Vatnajökuls á minni dekkjum en 4,3".
- Surly Pugsley (hjólið) stóð sig frábærlega og sló ekki feilpúst.
- Ég fórnaði smá fjöðrun til að sprengja ekki dekk: 10 psi framan og 12 psi að aftan.
- Fat bike ferðahjól er og verður þungt en ég vil frekar hafa nóg af dóti og fara hægar yfir.
- Nota karabínur til að hengja vaðskó þar sem fljótlegt er að komast í þá.
- Gott aðgengi að mat og dóti getur sparað marga klukkutíma í svona ferð.
- Muna sólarvörn. Ég brann næstum einn daginn þó það væri skýjað.
- Gefðu upp ferðaplan og vertu í góðu samstarfi við landverði ef þeir eru á svæðinu.
- Svefnpoki með comfort level að -4°C er passlegur að mínu viti fyrir sumarferðir á hálendið.
- Dúnsvefnpokar mega ekki blotna.
- Fjallahjólabuxur frá Fox eða Leatt eru slitsterkar, léttar og þorna strax. Þær eru ekki vatnsheldar en þægilegt að fara í og úr.
- Buxurnar verða að vera þröngar niður svo þær fari ekki í tannhjól og keðju.
- Það er minna mál að vera blautur fyrir neðan mitti og það mun gerast. Er ekki viss um að ég kaupi regnbuxur.
- Léttir GoreTex skór. Var í Scarpa Mojo háum sem voru frábærir. Skoða samt ennþá léttari með teygju í stað reima næst.
- Tvö pör af vettlingum og geyma aðra í tösku þar sem þeir haldast þurrir.
- Frábært að vera með buff um hálsinn og geta líka varið skallann fyrir sólinni. Einnig hægt að draga það fyrir muninn ef það kemur sandstormur.
- Sundgleraugu eða önnur gleraugu til að verjast sandroki. Keypti mér hlífðargleraugu í Byko en þurfti ekki að nota þau.
- Góð eldunartæki sem eru helst ekki meira en 2 mínútur að ná suðu í 1 líter af vatni og þola vind. Verða að pakkast smátt og vel.
- Gleyma því að maður fari að standa í eldamennsku.
- Mat pakkaði ég neðst í töskur en setti alltaf dagsskammt í fjölnota poka efst í tösku.
- Passa upp á að nærast vel og velja eins hollt og hægt er. Nammi er orkubúst en stendur ekki með manni.
- Þurrkaðir ávextir á undan nasli og mat eru góðir. Orkan er lengi að skila sér út í blóðið.
- Electrolyte töflur (sölt) til að blanda í vatn ef það eru mikil átök.
- Borða áður en maður verður svangur eða orkulaus. Eftir stóra máltíð borðaði ég ekkert í 2 tíma en fékk mér svo orku einu sinni á klukkutíma eftir það.
- Drekka mikinn vökva en passa að fá sölt (feitar pylsur, electrolytes eða annað).
- Ef þú ert ekki að pissa, þá ertu væntanlega ekki að drekka nóg. Glært piss er gott merki.
- Það er ekki hægt að komast í ferskvatn allstaðar. Ég gat borið með mér tæpa 4 lítra og það var passlegt.
- Það kom ekki sú brekka sem ég hefði ekki getað hjólað upp en stundum ýtti ég hjólinu til að hvíla mig. Það er ekkert til að skammast sín fyrir og gott að hvíla rassinn.
- Vera í góðu formi; there's no way around it!
Ummæli