Meira hversdagslíf
Úr hversdagslífinu. |
Lífið eftir sumarfrí hefur verið svona upp og ofan. Fyrsta vikan í vinnunni var óneitanlega mjög langdregin og erfið, en síðan fóru hlutirnir að gerast- og nú er reyndar allt komið í fullan gang. Ekki bara í fullan gang, heldur finnst mér eins ég sé búinn að missa yfirsýnina yfir verkefnin og þetta sé allt komið í skrúfuna. Í gær, og í dag er ég búinn að vera með kvíðahnút í maganum og mjög eirðarlaus. Ofan í þetta blandast áhyggur af einhverjum hlutum sem ég þarf að ganga frá í einkalífinu.
En ég er farinn að þekkja sjálfan mig það vel að ég veit að ég er að mála skrattann á vegginn. Þetta mun allt reddast og ég er að gera mitt besta. En ég næ samt bara ekki þessari sektarkennd, eirðarleysi og vanlíðan úr mér svo auðveldlega. Skrítið hvernig hausinn á okkur virkar. Það sem ég ætla núna að gera til að ná mér á réttan kjöl er að skrifa niður allt sem ég „þarf“ að gera og vinna mig hægt og rólega í gegnum listann. Nóg af væli.
Börnin fóru til mömmu sinnar í gær og það var því frekar tómlegt í kofanum í gærkvöldi. Ég náði samt alveg að njóta þess, fór út að hjóla, eldaði góðan mat og horfði á fréttirnar. Síðan var maður bara að reyna að koma heimilinu á réttan kjöl, já og svara í hreindýrasímann í afleysingu fyrir Jóa fyrir austan. Listaverkagerð situr ennþá á hakanum og þegar hugmyndin um að mála kemur upp í hugann, þá moka ég yfir hana og reyni að gleyma henni, eitthvað sem ég verð að vinna í.
Í gær hjólaði ég fram í Hrafnagil og var bara á lullinu. Það var slagveður en hlýtt til að byrja með en svo dró úr vindinum og stytti upp. Dásamlegt veður. Næsta æfing verður langur túr á morgun eða ferð upp í skíðahótel. Mun stilla það af út frá veðurstpá.
Ummæli