Kíkið á Fjalla Bjarna 2021

Nú er ég búinn að klára 2 daga hérna um ferðina mína í sumar. Í valmyndinni hér að ofan er hægt að smella á Fjalla Bjarni 2021 og lesa sig í gegnum þetta. Ég ætlaði að hafa þetta stutt og skorinort en endaði í einhverri bölvaðri langloku. Þetta er langt frá því að vera skemmtilega skrifað og það liggur við að ég fari í gegnum þetta aftur, stytti þetta og fækki myndum.

Ég tók mér frí í vinni í dag og við börnin ætlum að fara í berjamó. Það er víst allt fullt af blábjerum í Krossanesborgum og þangað er förinni heitið. Við eigum bara eftir að stoppa í Nettó og kaupa nesti og svo þarf ég að droppa við í vinnunni og skrifa einn tölvupóst.

Ég búinn að spá svolítið mikið í hvernig trainer ég ætla að fá mér og valið stendur eiginlega á milli Wahoo Kickr og Wahoo Core. Ég sé í fljótu bragði ekki annað en að ég muni koma þessu fyrir í svefnherberginu mínu en það eina sem ég er stressaður með er að það myndist einhver víbringur og nágrannarnir eigi eftir að kvarta ef ég er að hjóla snemma á morgnana. Það eru svefnherbergi bæði fyrir ofan og neðan. Sjálfsagt ekki annað að gera en að láta á það reyna. Ég hef eiginlega ekki pláss fyrir þetta í stofunni.

Ég er búinn að hóla 2var í vikunni. Vaknaði kl. 05:30 í gærmorgun og hjólaði út í Hrafnagil. Ég var ekki mjög sprækur og kannski er að kikka inn einhver þreyta eftir ferðina og eftir Orminn. Í dag verða bara einhverjar samgönguhjólreiðar, á morgun brekkusprettir og svo ætla ég að taka einn langan easy túr á sunnudaginn. Í næstu viku verð ég barnlaus og þá verður þetta minna púsl.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap