Í vinnu á morgun.

Á Flateyjardal.

Ég er búinn að vera eitthvað hálf tættur í dag. Ég held að þetta sé bara smá dýfa eftir að ferðinni lauk, en svo skulda ég líka myndir og mér hefur ekki gengið vel að koma mér að verki- það veldur smá samviskubiti. En ég kláraði samt ferðadagbókina mína í skissubókinni úr ferðinni og kannski kemur það mér af stað.

Í gær skellti ég mér með mömmu, Agli og Halldóru í Flateyjardal. Planið var að hjóla alla leiðina en þegar við áttum rúma 10 km eftir þá hættum við vegna mikillar umferðar. Það var stanslaus traffík af bílum, sem hefði kannski sloppið eitt og sér, en þegar það var byrjað buggybíla rally, þá gáfumst við upp. En ferðin var í heildina góð og ég hjólaði tæpa 50 km.


Úr ferðadagbókinni.

Þrátt fyrir mikið hjólerí síðustu vikur þá líður mér vel í skrokknum. Í dag taldi ég samt rétt að taka því rólega, enda tók ég vel á því úr Flateyjardal og niður á afleggjara í gær. Það getur ekki verið hollt að taka aldrei frídag. Nú er tæp vika í Tour de Ormurinn og ég verð að stilla æfingar af miðað við það. Það má segja að ég sé kominn í keppnisþyngd og það verður forvitnilegt að vita hvernig svona hjólaferð virkar sem undirbúningur fyrir götuhjólakeppni.

Að lokum vil ég nefna að ég er byrjaður að skrifa ferðasöguna sem verður ríkulega myndskreitt. Það mun reyndar verða töluvert mikil lesning og ég er að gera mitt besta í að skera niður. En eins og ég er að vinna þetta núna verður smá yfirlit og svo verður hægt að smella á hlekk með hverri dagleið fyrir sig.

Já og svo er það bara vinna á morgun.... usss hvað ég nenni ekki, en það verður víst ekki hjá því komist.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap