Heatmap og nýjar æfingar

"Heatmap"-ið mitt af Íslandi

Eftir að hafa móast við í 2 ár, þá borgaði ég aftur fyrir Strava Premium um daginn og það er fullt af drasli sem opnast sem gaman er að skoða. Mjög gott að fylgjast með hvernig formið er, hvort maður þurfi að hvíla, hvernig maður stendur sig miðað við aðra og svo er hægt að setja upp æfingaplön ofl. Einnig er mjög áhugavert að skoða hitakort af því hvar maður hjólar mest. Hér fyrir ofan eru allar Strava færslur hjá mér frá upphafi (hlaup meðtalin).

Hitakortið mitt af Akureyri.

Þegar maður þysjar inn á Akureyri er maður fljótur að sjá hvar ég er duglegastur að hjóla. Á leið minni úr bænum fer ég yfirleitt í gegnum Naustahverfið og greinilega oftast áfram suður í Hrafnagil. Nýji hjólastígurinn meðfram sjónum er heitur og svo er leiðin upp í Hlíðarfjall oft á dagskránni. Mest hjólaða leiðin er svo Skautasvellsbrekkan, en þar hjóla ég oft upp og niður eins og fáviti.

Eitt sem er svo hrikalega flott við þessi hitakort er, að hægt er að nota þau við skipulagningu hjólreiðastíga. Ef fólk merkir samgönguhjólreiðar sem "commute" þegar það er búið að hjóla, er hægt að kalla fram sérstakt kort af þeim leiðum þar sem mest er þörf á samgöngubótum. Kortið mitt hérna fyrir ofan er bæði með hjólaæfingum og samgönguhjólreiðum.

Annars er bara allt ágætt að frétta og börnin komin heim eftir 3 vikur með mömmu sinni. Það voru fagnaðarfundir í gær og börnin glöð að hitta vini sína. Á eftir ætlum við að skella okkur í sund og svo hafa það kósý í kvöld. Uppfært- þau vildu frekar fara út að leika heldur en að hafa kósý.

Síðustu mánuði er ég búinn að vera með æfingarútínu hérna heima sem ég hef verið duglegur að gera. Þetta hafa verið æfingar fyrir maga, hendur og brjóstkassa. Þó ég hafi ekki farið í ræktina frá því í vor, þá hefur þetta haldið manni þokkalega vel við og hjálpar klárlega til við hjólreiðarnar. Nú er kominn tími á smá breytingar og reyna að rétta aðeins meira úr sér, laga líkamsstöðuna og styrkja bakið. Ég fjárfesti því í upphífingarstöng í dag sem ég fæ eftir næstu helgi.

Ég reikna með að koma stönginni upp inn í herbergi þar sem ég geri yfirleitt æfingarnar mínar og ætli það endi ekki með því að það verði kominn skjár þangað inn og hjól á trainer. Það er eitthvað sem ég ætlaði mér aldrei að gera. Aldrei að segja aldrei, öll vígi eru fallin

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap