Geggjuð blíða

Marsipan súkkulaði á Smámunasafninu bjargaði mér.

Veðurblíðan hérna fyrir norðan hefur verið hreint með ólíkindum. Samkvæmt spánni í gær átti nú samt að verða eitthvað lát á í dag, þ.e. ef maður telur 18-20°C hita ekki nóg. Hitinn fór samt upp í einhverjar 22°C þegar ég var að klára að vinna áðan. Ég hjólaði einhverja 10 km, í Byko, til skósmiðsins, á Glerártorg og loks niður í bæ. Ég var í skyrtu og buxum og var að stikna þegar ég kom heim. Djöfull elska ég þetta.

Í gær var ennþá heitara, 26°C og nokkuð stíf sunnan átt. Ég ákvað að nýta veðurblíðuna og taka langan túr. Ég nennti varla að hjóla á móti vindinum fram í sveit, en vissi svo sem að það yrði alveg óskaplega skemmtilegt að fara til baka. Ég hjólaði suður að Smámunasafni en þegar ég var að verða kominn þangað var ég að verða bensínlaus. Ég var nýbúinn að éta eitt orkugel en hafði verið of seinn að koma því í mig og átti ekki gram af glýkógeni eftir í vöðvunum. En sem betur fer var ennþá opið á safninu og ég með visakortið á mér svo ég gat keypt mér eitt marsipansúkkulaði og troðið í smettið á mér.

Eftir þetta var ég fljótur að hressast og snéri við, setti geggjaða tónlist í eyrun og hjólaði með vindinn í bakið. Það var svo stíf sunnanátt að það datt allt í dúnalogn á hjólinu, vindgnauðið var horfið og það var steikjandi hiti. Eftir þetta hélt ég að mestu 40-50 km/klst, hallaði mér fram á stýrið og naut þess í botn að hjóla í þessu geggjaða umhverfi. Við Hrafnagil beygði ég svo yfir Eyjafarðaránna og fór upp að Laugalandi. Þegar nálgaðist Akureyri beygði ég svo upp í hverfi í Vaðlaheiðinni og kom niður hjá göngunum.

Þegar ég var að verða kominn heim sprakk reyndar hjá mér og ég skipti um slöngu rétt hjá Kaupangi. Síðan skaust ég í apótek og búð fyrir Halldóru og kom við hjá henni. Túrinn var 73 km og þó ég hafi að mestu verið rólegur var ég eitthvað að sperra mig í 2 brekkum og fann aðeins fyrir þessu í morgun. Ég er með smá eymsli í vinstra hnéinu. Ég hef ekkert of miklar áhyggjur af því og er að vona að þetta verði horfið á morgun.

Ég ætla að reyna að ná 2 æfingum í viðbót áður en vikan er úti og það má því reikna með að þessi vika verði ca. 160 km og 6 tímar á hjólinu. Og svo er ég búinn að taka upphífingarstöngina í gagnið og er að breyta aðeins æfingarútínunni hérna heima. Lífið hjá mér snýst s.s. að mestu um einhverjar æfingar þessa dagana, sem er fínt. Ég steig á vigtina í morgun og þurfti að nudda á mér augun, ég er kominn undir 64 kg. Þetta hjólerí er að skafa af mér hvert einasta gram af fitu þó ég sé búinn að éta mikið pasta, hrísgrjón og brauð. Ég er farinn að efast um flest sem ég hef áður predikað um mataræði og skil ekki neitt? En ég ét allavega hollt, nóg af próteinum og líður stórkostlega. Gott í bili.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap