Ferðapælingar

Ferðapælingar fyrir næsta sumar.

Ég var nú ekki búinn að vera lengi niðri á flatlendinu eftir hálendisferðina þegar ég var lagstur aftur yfir www.map.is og farinn að skoða nýjar leiðir. Og ég er s.s kominn með ýmsar hugmyndir í sambandi við það. En ég er líka farinn að velta því fyrir mér hvort ég geti ekki farið með börnin til Danmerkur og Svíþjóðar að hjóla.

Planið er nokkurnveginn svona: Vera í Kaupmannahöfn í 3 daga og hjóla svo með ströndinni upp til Helsingør, þar sem meðal annars má skoða Kronborg kastalann. Taka síðan ferjuna yfir til Svíþjóðar og hjóla til pabba og Hafrúnar í Lundi. Ég treysti Dagbjörtu Lóu ágætlega til að hjóla ca. 25 km á dag, og því gætu þetta verið 5 dagleiðir og svo mundu bætast við einhverjir hvíldardagar til að skoða sig um. 

Þetta er náttúrulega heilmikið batterí en ég held að þetta sé vel þess virði og eitthvað sem þau munu muna alla ævi. Ég er búinn að ræða við þau að kannski gefi ég þeim þetta bara í jólagjöf og það er svo sem ekki margt sem okkur vantar. Við þurfum 3 manna tjald, dýnur fyrir þau og svo þyrftu þau að hafa töskur á sínum hjólum. Annað eigum við til.

Maður verður að hafa eitthvað til að láta sér hlakka til!

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap