Blóm og keppni
Úr stofunni. |
Það gengur hægt hjá mér að skrifa ferðasöguna og ég verð að fara að bretta upp ermar ef það á ekki að snjóa yfir þetta í kollinum á mér. Ég er bara búinn að klára dag 2- og þetta er allt of langt. Ég reyni samt að setja þetta þannig upp að fólk geti líka haft gagn af því að lesa bara innganginn að hverri dagleið og renna svo yfir myndir. Fyrir hina eru meiri upplýsingar og staðhæfulausar staðreyndir sem litaðar eru af lélegu minni og þeirri staðreynd að ég var oft óþarflega mikið að flýta mér.
Langaði að láta einhverja mynd fylgja færslunni en fátt áhugavert hefur á daga mína drifið þessa vikuna. Því setti ég bara eina blómamynd úr stofunni. Stofan er að verða eins og frumskógur eftir sumarið. Havaii rósin hefur verið að blómstra, stóra mánagullið fossar fram af hillunum og er að ná niður í gólf. Gamla góða jukkan er orðin að tréi. Og öll hin blómin, sem ég man ekki hvað heita, hafa það alveg óskaplega næs. Um daginn var ég að spá í að losa mig við kólusana (á myndinni) þar sem þeir voru úr sér vaxnir en þess í stað klippti ég ofan af þeim, lét afklippurnar ná rótarskoti og þétti í pottunum. Það er allt annað að sjá þá.
Á laugardaginn er ég svo að fara að taka þátt í Tour de Ormurinn á Egilsstöðum. Þið takið eftir að ég segi taka þátt, en ekki keppa. Þetta er svona sálfræðilegt fyrir mig til að setja mig ekki undir pressu. Ég er ekkert minna stressaður heldur en fyrir Mývatnshringinn en ætla að reyna að hafa gaman að þessu. Ég lærði mikið í síðustu keppni og nú ætla ég að setja markið aðeins hærra og vona að ég nái að hanga í sterkari hóp en síðast. Ef maður endar einhverstaðar einn á milli hópa, þá er maður "toast". Maður verður að reyna að spara eins mikla orku eins og hægt er án þess að verða gaurinn sem leggur ekkert til á móti. Nenni ekki að vera sá gaur.
Þegar ég verð búinn í vinnu á morgun (föstudag) þá ætla ég heim að græja hjólið. Stilla loftþrýstinginn í dekkjunum, setja á annan brúsahaldara, þrífa það og fara yfir gírana. Síðan ætla ég að taka stuttan hring og prufa hvernig mér gengur að taka inn orku á ferðinni. Ég reikna með að vera þokkalega étinn þegar ég fer af stað en hef með mér 2 brúsa með íþróttadrykk með kolvetnum og sölutm (electrolytes) og svo 3 orkugel sem gefa ca. 300 hitaeiningar. Hringurinn sem við förum eru 68 km og þetta verður algjör endemis sjálfspinting. Nú er búið að breyta spánni úr þurru hæglætisveðri yfir í rigningu. Það er ekki á allt kosið.
Ummæli