Alltaf brekkur

 
Í "Skautasvellsbrekkunni".

Við börnin fórum í berjamó í gær til að fylla á kistuna fyrir veturinn. Núna eigum við 14 fulla "zip-lock" poka í frosti til að nota á grautinn og í hræringa. Dagbjört vill reyndar líka gera bláberjasultu og ég er að spá í að láta það eftir henni. Ætli við gerum ekki 3-4 krukkur seinnipartinn í dag.

Eftir berjaferðina í gær, sem að sjálfsögðu var hjólaferð, þá var ég alveg gjörsamlega búinn á því. Þetta var annar dagurinn í röð þar sem ég verð alveg bensínlaus eftir hádegið. Ég var þreyttur í líkamanum og sifjaður. Ég var farinn að hafa áhyggjur af því að ég væri að fá æfingaálag síðsutu 2 mánaða og hjólaferðina á hálendið í hausinn.

En ég ákvað að gera mitt besta til að snúa þessu við. Át fulla skál af grænmetiskarrý með baunum og svo 2 skálar af bláberjum með rjóma í gærkvöldi. Fór síðan snemma í bælið, svaf eins og engill og þegar ég vaknaði í morgun át ég hafragraut með rjóma og bláberjum og slátur. 

Þetta virðist hafa farið vel í mig því ég tók brekkuspretti í skautasvellsbrekkunni og var bara helvíti sprækur. Ég sé það á Strava að af öllum ferðum sem hafa verið "trakkaðar" upp þessa blessuðu brekku, þá á ég 6,6% af þeim. Þetta er engin þráhyggja í mér en mér finnst þetta gaman og finn hvað þetta skilar góðum árangri.

Nú skín sól í heiði og Brynleifur er farinn út í fótbolta. Ég ætla að skella mér með Dagbjörtu á leiksvæðið við sundlaugina og ætli við einhendum okkur svo ekki í sultugerð. Á morgun ætla ég að reyna að ná inn 70 km til að klára vikuna. Næsta vika lítur vel út til æfinga, veðurspáin er geggjuð.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap