Vaðskór
Sea to Summit vaðskór |
Ég skellti mér í innkaupaleiðangur í gær. Á listanum voru stuttbuxur, vaðskór, gas og hlýir vettlingar. Ég endaði á að blæða í Sea to Summit vaðskó sem kostuðu 9000 kall með FFA afslætti og 2 gaskúta. Ég held að það sé fínt að eiga góða vaðskó og ég get notað þá í mörg ár og þeir nýtast í gönguferðum líka.
Ég fann ágætar stuttbuxur en fór að velta því fyrir mér hvort ekki væri ólíklegt að ég gæti notað stuttbuxur hvort eð er? Sennilega er tölfræðin ekki að vinna með mér í því efni. Ég veit það ekki..... kannski væri gott að vera í stuttbuxum og kaupa "leg warmers" sem nýtast líka á götuhjólinu, þ.e. ef maður væri ekki búinn að slátra þeim í þessari ferð. Ég hallast samt frekar að því að nota bara það sem ég á.
Varðandi vettlinga, þá vantar mig reyndar hvort sem er vettlinga fyrir veturinn en ég er að reyna að horfa í hverja krónu. Ætli ég endi ekki með því að taka bara með þunnu hjólavettlingana og taka með til öryggis prjónavettlinga. Þeir dugðu Fjalla Bensa í það minnsta vel.
Ég ætla að sofa aðeins á þessu og fara að drífa mig í matarplönum. Ég ætla að kaupa mér zip lock poka og vikta í þá haframjöl, fræ, þurrkaða ávexti og allt sem þarf í góðan morgunmat. Síðan þarf ég að setja kaffi í þægilega poka og útbúa kassa sem ég sendi á undan mér upp Öskju. Skíturinn er að verða raunverulegur.
Ummæli