Golf

Brynleifur lenti í öðru sæti í sínum flokki í Akureyrarmótinu.

Það er óhætt að segja að það hafi verið nóg að gera hjá okkur síðustu daga. Um síðustu helgi fór ég upp í Öskju og Kverkjöll með Þórði, Slim, Iriju og Izu. Við fengum geggjað veður og það var skafheiður himinn og allt að 26°C hiti allan tíman. Það er nú beisíkk að synda í Víti en hitinn bauð upp á meira en það. Ég synti líka í Grafalandaránni og í Hvannalindum. Þetta var algerlega sturlað.

Á mánudaginn byrjaði svo Akureyarmót barna í golfi og ég plataði Brynleif til að vera með. Hann var ekki alveg viss en það kom fljótt í ljós að þetta átti vel við hann. Hann var pollrólegur, sveiflaði eins og engill og lenti eiginlega aldrei í vandræðum. Ef hann hefði púttað aðeins betur þá hefði hann rústað þetta. En við erum alsælir og hann er alveg að finna sig í golfinu.

Eftir góða hvíld um helgina er ég búinn að taka 3 æfingar á hjólinu í þessari viku. Á mánudaginn fór ég upp í skíðahótel og í gærmorgun hjólaði ég um bæinn og tók allar brekkur sem voru í boði (420 metra hækkun). Í morgun vaknaði ég klukkan 06:00 og hjólaði klassískan Eyjafarðarhring. Ég var ekkert að sperra mig of mikið en hélt samt 30 km/klst í 30 kílómetra og var eiginlega gáttaður á því hvað ég fór létt með þetta. Ég hef aldrei verið í svona góðu hjólaformi og þetta er geggjað gaman. Ég ætla að vera skynsamur og hvíla á morgun.

Pabbi og Hafrún komu í gær og við fórum í Lystigarðinn. Þau eru búin að vera að dunda sér í rólegheitunum í dag og koma svo til okkar í kvöldmat á eftir. Á morgun förum við í hvalaskoðun og út að borða. Þau fara á föstudagsmorgun og þá ætlum við börnin að útilegast eitthvað eða finna einhver ævintýri. Mér verðu að öllum líkindum öllum lokið þegar þetta sumarfrí klárast🤣

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap