Æfingadagbók, sími og matur.

Máltið sem ég át í Femsjö í Svíþjóð 2019.

Ég er búinn að eiga elsku iPhone símann minn í 4 ár og 3 mánuði. Þetta er iPhone 7 plus og ég hef verið hrikalega ánægður með hann. Hann hefur staðið sig frábærlega og aldrei verið með neitt vesen, fyrr en upp á síðkastið. Núna eru komnir allskonar "böggar" í hann sem eru að pirra mann. Stundur er hann lengi að ná sambandi við iCloud-ið, það kemur fyrir að hann slekkur á forriti sem maður er að vinna með, stundum er snerti-fúnksjónin í skjánum eitthvað skrítin og ég get ekki notað FaceTime. Ég var að vonast til að hann myndi endast út sumarið en ég er orðinn pínu smeikur við að taka hann með í hálendisferðina mína. En ef hann hagar sér vel næstu daga, þá leyfi ég honum sennilega að fara með.

Í síðustu viku hjólaði ég yfir 300 km og með samgönguhjólreiðum hef ég ábyggilega verið 14 tíma á hjólinu. Ég var fínn í upphafi viku og skellti mér eina erfiða ferð upp í skíðahótel og tók svo brekkuspretti á miðvikudaginn hjá malbikunarstöðinni. Í gær ætlaði ég að hjóla 70 km þar sem ég er að fara upp á fjöll um helgina en ég snéri við eftir rúma 20 og fór heim aftur. Það var helvítis blástur og ég fann fyrir þreytu. Ég vaknaði svo klukkan 05:20 í morgun og ætlaði að hjóla upp í skíðahótel og skila inn 30 km í viðbót. En það var sama sagan; ég finn fyrir þreytu og tók bara rólega 20 km. Ég hjólaði hringinn í kringum bæinn í morgunblíðunni, ekki sála á ferli og sólin að koma upp. Þetta var æðislegt.

Hvíldarpúlsinn hjá mér er orðinn hár og nú verður maður bara að hlusta á líkamann og nota helgina til að safna kröftum. Þessi vika mun enda í rúmlega 100 km. hjá mér og það er bara fínt. Ég verð kominn í gott form fyrir hjólaferðina og vonandi á ég eftir að eiga gott mót þegar Tour de Ormurinn verður um miðjan ágúst. Það verður hjólakeppni númer 2 hjá mér á þessu ári og örugglega sú síðasta.

Um daginn fór ég á www.postverslun.is og pantaði mér þurrmat fyrir hjólaferðina. Ég var pínu stressaður að þetta væri eitthvað rusl þar sem þetta er helmingi ódýrara en í flestum útivistarverslunum. Ég gúgglaði samt eitthvað og gat ekki betur séð en að þetta ætti að vera fínasti matur. Ég pantaði 11 skammta og það ætti að duga út sumerið. Ég var ekki búinn að prufa hvernig þessi matur er en í fyrradag dúkkaði upp minning úr hjólaferðinni minni í Svíþjóð og þá sá ég að ég hafði keypt einn pakka af þessu til prufu þegar ég var þar. Og ég man að þetta var ljómandi gott, án aukaefna og frekar hollt. Ég á allskonar mismunandi tegundir og ég hlakka til að prufa hvernig þetta virkar.


Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap