Draumahúsið
Mynd frá Völundarhús. |
Hér að ofan ber að líta draumahúsið mitt. Það hefur leynst í hugarfylgsnum mínum um langt árabil. Það hefur siglt um eins og stefnulaus bátur í þykkri þoku. Stundum hefur hann nálgast, en þegar hann er að verða greinilegur þá snýr hann við og hverfur út í þokuna.
Þegar ég og Guðrún vorum að tala um að reisa okkur sumarhús á Steinhólum var ég með ákveðnar hugmyndir um hvað ég sæi fyrir mér. Ég teiknaði framhliðina á bústaðnum og sá fyrir mér samspil steina, veðraðs viðar, stórra glugga og jafnvel torfs. Þar sá ég reyndar fyrir mér að láta bygginguna falla inn í landslagið og að hægt væri að nýta þakið sem pall. En það er önnur saga.
En það er ekki á stefnuskránni hjá mér að byggja hús og ég er afskaplega sáttur við hlutskipti mitt í dag, þ.e. að búa bara í gamalli blokk. Þar líður okkur vel og þurfum ekki einu sinni að eiga bíl. En þrátt fyrir það hef ég stundum sagt við krakkana í gamni, að mig langi að byggja lítið hús úti í skógi með bragga við hliðina og bragginn þarfnast kannski smá útskýringa.
Og aftur komum við að mér og Guðrúnu, því það var eiginlega hún sem kveikti þetta braggablæti í mér. Við ætluðum alltaf að eignast bragga og upp úr því fór ég að velta þeim meira fyrir mér. Það er eitthvað við bragga sem lætur mér líða vel. Ætli það séu ekki bara þessar bogadregnu línur og mýkt sem hefur svipuð áhrif á mig og að vera staddur á heiðum uppi. Hraun og há fjöll gera mann geðveikan en slétt fífusund á heiðum uppi koma manni í jafnvægi. Bara beisíkk. Þegar ég fer á flugsafnið á Akureyri get ég setið tímunum saman inni í bragganum og drukkið kaffi, það er eins og eitthvað therapy.
En í (framtíðar) bragganum mínum, þar munu hlutirnir gerast. Þar verð ég með hjólin mín og aðstöðu til að gera við þau. Allt sem tengist hjólaferðalögum og útivist. Ég sé fyrir mér lítið gallerí og aðstöðu til að mála myndir og svo verður lyftingaaðstaða. Í einu horninu verður sófi, góðar græjur- en ekkert sjónvarp. Í húsinu mínu þarf ég því ekkert nema mat, hversdagsföt, fartölvu og nokkrar bækur.
Bragginn hefur alltaf verið nokkuð tilbúinn í hausnum á mér en svo dúkkar upp þetta litla minnimalíska hús og það var það eina sem vantaði í myndina (utan við gufubaðið sem á að vera á milli braggans og hússins). Þarna er engu ofaukið, stórir gluggar og það eina sem vantar er strompur fyrir kamínu. Og við þetta fór hausinn á flug og nú þarf ég bara að vinna nokkrar millur í Lottó og málið er dautt.
Ummæli