Byrjaður að pakka á hjólið

Mynd: http://davesbikeblog.squarespace.com/

Í götuhjóla-kreðsunni er hópur sem kallaður er weight weenies. Þetta er lið sem er obsessed á að létta hjólið sitt eins mikið og hægt er. Menn kaupa carbon sætispóst, stýri, brúsahaldara, latex slöngur, carbon felgur, léttari skiptingar, skó, og pedala. Og ef það er ekki carbon, þá er það titan eða keramik. Það er allt gott og blessað ef fólk vill eyða tugum eða hundruðum þúsunda í að létta hjólið um nokkur hundruð grömm. En það verður að viðurkennast að þetta er svolítið fyndið þegar fólk er kannski allt of þungt og nennir ekki að æfa.

Á götuhjólinu mínu er ég með óþarflega þunga pedala, skó, dekk, slöngur og felgur. Fyrir margt löngu fór mig að langa til að uppfæra þetta en ákvað að hugsa ekki um það fyrr en ég væri orðinn aðeins léttari og í betra formi. Mig minnir að ég hafi verið ca. 72 kg. þegar það var (í fyrra). Nú er ég búinn að bæta mig alveg helling og þegar ég steig á viktina í morgun þá var ég 66,4 kg. Skv. meðaltalstölum úr Tour de France, þá er hjólari í minni hæð að meðaltali tæp 65 kg þannig það er ekki eins og ég sé kominn í neina anorexiu.. Ef ég verð kominn í 65 kg. eftir hjólaferðina, þá verð ég búinn að missa 7 kíló frá því ég fór að spá í þetta. Ef ég kaupi mér felgur sem eru hálfu kílói léttari, þá gæti ég þurft að borga 200 þúsund ef ég kaupi þær nýjar. Ef ég færi að skipta út öllu sem ég taldi upp áðan, þá væri ég ábyggilega að borga hátt í 500 þúsund fyrir að létta hjólið um 1,5 til 2 kg.

En þetta er svolítil einföldun hjá mér og það kemur fleira til en viktin og ber þar helst að nefna stífleiki (t.d. í felgum) og loftmótstaða. Ég er orðinn of þreyttur til að fara út í það núna og útskýri það seinna hversvegna ég ætla samt að kaupa mér nýjar felgur, dekk og slöngur á næsta ári. En þangað til ætla ég að halda áfram að vera duglegur og bæta mig með það dót sem ég er með í höndunum.

Annars er allt búið að vera á hvolfi hjá mér að græja mig fyrir ferðina sem hefst á þriðjudaginn. Puggurinn er kominn upp í stofu, maturinn tilbúinn og allt á hvolfi. Ég birti einhverjar myndir og sýni hvernig ég raða þessu á hjólið, ef ég næ þá að koma þessu öllu fyrir🥺

Að lokum, þá vaknaði ég kl. 06:00 í morgun til að hjóla. Ég er búinn að vera með eitthvað djöfullsins kvef og hósta. Finn ekki fyrir því á daginn en sef illa og vakna sár í hálsinum. Ég fann það á æfingunni í morgun og ætli maður verði ekki að pína sig til að vera bara rólegur á morgun.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap