Nú er góð helgi að baki og endaspretturinn í vinnunni fyrir
sumarfrí hafinn. Það er öll verkefni að storkna, stjórnýslan lömuð og maður
þarf að grafa djúpt til að finna orku í að gera eitthvað. Ég hef aldrei verið
svona búinn á því fyrir sumarfrí og get bara hreinlega ekki beðið eftir
föstudeginum.
En aftur að helginni. Á laugardagsmorgun sá ég á FB tilkynningu
um eitthvað samhjól út á Dalvík. Var að spá í að vera anti social og hjóla bara
einn. Það er svo auðvelt og þægilegt. En ég fór út fyrir þægindarammann, skellti
mér með og sé ekki eftir því. Ég lenti í slagtogi með Herði Finnboga og við
hjóluðum saman út á Dalvík, drukkum þar kaffi og fórum svo Svarfaðadalinn til
baka (115 km í allt). Eftir Svarfaðadalinn hittum við gaur sem heitir Wiktor og
hjóluðum með honum restina. Ég þurfti að hafa mig allan við til að hanga í
þessum gaurum en það var geggjað. Þegar við komum í bæinn sátum við svo í 2
tíma í sólinni, fengum okkur hressingu og kjöftuðum. Skellti mér svo út um
kvöldið og hitti skemmtilegt fólk. Þetta var frábær tilbreyting frá einangrun
síðustu tveggja vikna.
Núna eru börnin komin til mín og maður að halda mörgum
boltum á lofti. Þau eru bæði þreytt, sérstaklega Dagbjört sem getur ekki beðið
eftir að komast úr leikskólanum. Ég stefni með þeim austur um helgina og þau fá
að vera í Brekku á meðan ég fer á fjöll með Iriju, Þórði, Slim og Izzu. Þetta
er afmælisferð fyrir Iriju og stefnan tekin á Öskju og Hverfjöll.
Er að reyna að troða hjólaæfingum inn í þessa viku en það verður lítið hægt að gera. Ætli það verði ekki bara skíðahótelið, eitthvað stutt og erfitt.
Ummæli